Vér munum hér vera stuttorðir og eigi teygja lopann (á öðrum stað en í titli).
Hér munu hæstvirtar höfuðstöðvar utanríkisráðuneytisins vera, eða öllu heldur allt þangað til þessi þráður er kominn á aðra síðu og ég sé þörf fyrir nýjan. Andsvíti! gefur sjálfum sér kinnhest fyrir að teygja lopann
Leggið fram beiðnir, vegabréfaáritanir, umsóknir um búsetu og landaflutninga, leyfi til ferða eða kaupa, ályktanir, umsagnir, ábendingar, spurningar og allt það sem einhvernveginn tengist skrifræði og útlöndum, hér.
Hallar sér aftur í nýja stólnum
Þú segir að það þurfi að sækja um leyfi til landsflutninga, þýðir það að ég megi ekki fara hvert sem ég vill með Ísafjörð?
vohó, verð ég þá að vera með skriffinsku ef ég ætla til útlanda!?
Ég verð að ráða nýjan mann í hirðina.
Þú segir að það þurfi að sækja um leyfi til landsflutninga, þýðir það að ég megi ekki fara hvert sem ég vill með Ísafjörð?
Jújú, svo lengi sem það er innan þeirrar sýslu sem viðkomandi bær er skráður í...
vohó, verð ég þá að vera með skriffinsku ef ég ætla til útlanda!?
Ég verð að ráða nýjan mann í hirðina.
Leibbi Djazz hefði getað sómað sér vel í því hlutverki, en hann er týndur og tröllum gefinn.
Þjóðsagan segir að hann hafi haldið upp á hálendi til þess að skrá tröllin í þjóðskrána og láta þau greiða skatt, og hafi aldrei snúið til baka...
Hann sagði mér að hann ætlaði að skrá vampírana líka. Þá getur þetta alveg passað, það er ákveðnum vandkvæðum bundið að finna vampírana.
Ojæja, þjóðsögur breytast víst eftir því hvar í heiminum þær eru sagðar...
Ég fer ekki neitt því mér leiðist skriffinska og ég tala heldur ekki það mál.
Ég fer ekki neitt því mér leiðist skriffinska og ég tala heldur ekki það mál.
Þá ert þú óæðri manneskja...
snýr sér að einhverju öðru
Ég fer ekki neitt því mér leiðist skriffinska og ég tala heldur ekki það mál.
Hún hefur lengi valdið samanburðarmálfræðingum heilabrotum því hún virðist hafa þróast á afmörkuðu svæði í Belgíu án skyldleika nálægra tungumála þó vissulega beri hún keim af þýzkri tungu.
Hvað í dauðanum eruð þið að ræða utanríkismál þegar þið ættuð að vera að ræða stórvirkið og stórmindina Ástir og raunir forsætisráðherrans á Nikurvöllum! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Með Hollívúdd kveðju,
Ég fer ekki neitt því mér leiðist skriffinska og ég tala heldur ekki það mál.
Þá ert þú óæðri manneskja...
snýr sér að einhverju öðru
Þú ert óæðri endi!!!
Þú ert óæðri endi!
Iljar þá? Undarlegt að rass sé kallaður endi.
Þar endar líkaminn, fætur eru allt önnur lífvera.
Þessvegna er mannfólkið flokkað með fléttum, samlífi og við þrífumst hvarvetna á hnettinum.