Ég hef ákveðið að taka fram fyrir hendurnar á Baggalútsmönnum og setja upp smá könnun.
þessar kannanir eru mesta óþurft síðan var tekinn upp á íslandi!grípur klaufhamar og bíður færis þegar næsta óbermi setur inn könnun
Ég er á því að það eigi ekki að vera með þessa könnun á því hvort eigi að vera með kannanir á Baggalúti. Hreinsið þær bara út og ekkert múður
Kannanir eru.
En ættu að vera einungis í höndum færustu manna, s.s. æðstu ritstjórnar. En ekki sóðaverkfæri í höndum hins óbreytta notanda (neytanda) "lútsins"
Þetta er agaleg mismunun. Verða þeir sem eru á móti könnunum að koma þeim skoðunum sínum á framfæri með einni slíkri?
Þetta er verra en þegar grunnskólanemar fyrir norðan mótmæltu lélegri sundkennslu með maraþonsundi yfir Eyjafjörð. Við vitum öll hvernig það endaði.
Já! Með ósköpum!