Flaskan bláa búin er,
best að fá sér nýja.
Drekka má, á djammið fer.
Dansa þá til skýja.
Kraftmikil er konan mín,
kann að spila' og ríma.
Kraftmikil er konan mín,
kann að spila' og ríma.
Mér í vil nú mörgæs hrín,
má ég bilið líma. - Hryllir sig yfir vondum síðari parti
Mikla ölvun þurfið þið,
ef þessa bölvun létta viljið.
Mikla ölvun þurfið þið,
ef þessa bölvun létta viljið.
Ljóðatölvuleikurinn
léttur reynist þá, þið skiljið.
Komdu nú að kveðast á,
kiðfætt frú, á knæpu!
[Velkominn... Athuga skaltu að þú verður að klára hringhenduna þegar þú botnar... Auk þess er ofstuðlun í fyrripartinum þínum... Skabbi]
Kraftmikil er konan mín,
kann að spila' og ríma.
Mér í vil nú mörgæs hrín,
má ég bilið líma. - Hryllir sig yfir vondum síðari parti
Mikla ölvun þurfið þið,
ef þessa bölvun létta viljið.
Mikla ölvun þurfið þið,
ef þessa bölvun létta viljið
Sífellt tölvu sitjið við
og sýndarvölvu þessa spyrjið.
Himinn gránar húmar að
hanga fánar slappir niður.
Himinn gránar húmar að
hanga fánar slappir niður.
Skass í mánaskini kvað
skrýtnar, bjánalegar kviður.
Enginn hefur augu sjö
enginn grefur eigin gröf
Enginn hefur augu sjö
enginn grefur eigin gröf
Enginn gefur okkur tvö
ástin sefur, skilja höf.
Eitthvað saman eigum við,
er það gaman.
Eitthvað saman eigum við,
er það gaman.
Kyssir daman karldjásnið
klúr í framan.
Veðrið lítur illa út,.
alger skítakuldi
Veðrið lítur illa út,.
alger skítakuldi
mér vil flýta að kveða í kút
þó kvæði nýt ég skuldi
lokið flestu fáið nú
fenguð besta partinn.
lokið flestu fáið nú
fenguð besta partinn.
Kysstu prestinn fagra frú
og fáðu í nesti Kristna trú
Senn mun bíta kalt í kinn
kuldinn ítarlega.
Ég held að engin lifandi vera geti
botnað fyrripart Húmbaba svo úr
verði hringhenda, og ekki varð
hringhenda úr botninum hans,
þannig að ég skelli honum aftur hér inn.
Senn mun bíta kalt í kinn
kuldinn ítarlega.
Senn mun bíta kalt í kinn
kuldinn ítarlega.
Enginn skítur úti’um sinn
oní hvíta snjóskaflinn.
Engin glóra er að þjóra
átján bjóra, stóra.
Engin glóra er að þjóra
átján bjóra, stóra.
Sagði Þóra, síung hóra
og saup hjá Dóra, fjóra.
Alla daga eitthvað nýtt
ein vill bagan segja.
Alla daga eitthvað nýtt
ein vill bagan segja.
Sé hún hagalega hnýtt,
þarf hvorki lag' né beygja
Á þráðinn áðan óvart lét,
auma smáða skissu.
Á þráðinn áðan óvart lét,
auma smáða skissu.
Árinn báðum augum grét,
engri náði vissu.
Hringahendu hér í dag
höfum endilega.
Hringahendu hér í dag
höfum endilega.
Áframsendum betri brag
burt með hefnd og trega.
haltu kjafti heillin mín
hunskastu aftur upp í rúm
haltu kjafti heillin mín
hunskastu aftur upp í rúm
Fylliraftur hlær og hrýn
og hellir saftinni' yfir Glúm
Við þig leikur lífið nú
þú liggur veikur heima
(Spurning: verður innrímið ekki að vera í öðrum braglið?)