Kann ég engan kvæðaþveng
kúldrast lengí villu
Kaktuz eignaðist kosta dreng
kappinn með sinni frillu.
-
Kann ég engan kvæðaþveng
kúldrast lengí villu.
Orðin héngu, æðisgeng-
nu, þig ég reng´ í illu.
Kann ég engan kvæðaþveng
kúldrast lengí villu
vafra um í vísnaspreng
veiti ljóðagrillu
........
Orðasápu andans bar
oní leirhver sullaði
and- þá veittist óðar -svar
upp úr honum bullaði
Ef að viltu ósköp sjá
ættir þú nú bara
inn á þennan þráð að gá
já þangað skaltu fara
http://leirhverinn.blogspot.com/
já ævinlega velkomnir kæru bræður og systur
Vafraði inn á vísna-url
vönduð fann þar kvæði.
Vafraði inn á vísna-url
vönduð fann þar kvæði.
Ekki hafa kvæða kurl
kastað fram í bræði
Kann ég engan kvæðaþveng
kúldrast lengí villu
Skabba dreng í skáldaspreng
Spáð er gengi illu.
(Aungvar djúpar meiningar á bak við þetta Skabbi minn)
Í andans spreng og einum keng
einn ég geng á syllu.