Þið eigið þetta allt skilið ólátabelgirnir ykkar.
Skrúfar upp haustið
Ég held að þú þurfir að læra muninn á hausti og hávetri karlinn minn.
Já... hvenær kemur þetta blessaða sumar þá?
Ekki var það þegar það átti að vera.
Við eigum inni hjá þér sumar.
Ég vil fá sumar eða snjó!
Var ekki sól í Afríku vanþakkláta kisulóran þín!?
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Jú en það var í janúar, febrúar, mars og apríl!
Þá átti að vera snjór!
Þú ert bara afturhaldssinni og íhaldsforkólfur.
Frjálsar árstíðir!
Það getur þú sagt, sem þarft ekki að plana sumarfríið þitt samkvæmt árstíðum!
Þú stillir bara á sól þegar þú bregður þér frá, sama hvenær árs það er!
Hér nokkuð svalt, en blankalogn. Hvaða helvítis raus eretta?
Sko!
Baðar höndum í átt að Tínu og horfir stingandi augnaráði á Tígru
Ferlega erfitt að gera öllum til geðs.
Baðar hendurnar á Hakuchi
Bíddu bara.
Laumar skál með hlandvolgu vatni við rúmið hans Hakuchi
Fyrr í kvöld var ég á leið yfir fjallveg. Ég fann mig knúinn til að stöðva bifreiðina stutta stund og stíga út til að góna ögn upp í loptið. Þar blasti vetrarbrautin við og slíkur stjörnufans, að óskarsverðlaunin blikna í samanburðinum.
Ef Andri Snær eða aðrir sem búa vestan Elliðaár vilja sjá stjörnur mæli ég með þessu, frekar en að slökkva á nokkrum ljósastaurum í höfuðstaðnum.
Stillt veður var og vægt frost.
Andri Snær myndi aldrei nenna að keyra lengra en að Elliðaánum.
Var stjörnufansinn á Fróni, kæri Günter?
Fyrr í kvöld var ég á leið yfir fjallveg. Ég fann mig knúinn til að stöðva bifreiðina stutta stund og stíga út til að góna ögn upp í loptið. Þar blasti vetrarbrautin við og slíkur stjörnufans, að óskarsverðlaunin blikna í samanburðinum.
Ef Andri Snær eða aðrir sem búa vestan Elliðaár vilja sjá stjörnur mæli ég með þessu, frekar en að slökkva á nokkrum ljósastaurum í höfuðstaðnum.
Stillt veður var og vægt frost.
Það er nú algjör óþarfi að segja of mörgum frá þessu.
Þessa stundina er niðamyrkur en af hljóðunum að dæmi er rigning úti og þar að auki ríflegur skammtur af roki. Klassík.
Gleðst ósegjanlega yfir því að fá á ný tækifæri að segja fréttir af veðri
Það er sama veðrið og Dio lýsir hér að ofan.
Merkilegt að þessi helv. veðurvél skuli ekki virka betur en þetta!
Hjá mér er fínasta veður, hlýtt en fremur dimmt. Fyrir utan húsið er aftur á móti niðamyrkur, rok og einhverskonar frosin úrkoma.
Ég held að nýjasta félagsrit Barbapabba lýsi veðrinu einstaklega vel.