Það er spurning með hið gamalgróna, norðlenska fyrirtæki KEA sé á leið í samkeppni, nú eða öfugt, IKEA sá KEA á akureyri og bætti bara "i" inu við, einsog Mac.Klórar sér í höfðinu
Vjer minnumst þess að á gamla Gestapóinu (hvenær ætli hæstvirt ritstjórn veiti oss lítilfjörlegum gestum Gestapósins lestraraðgang að gamla Gestapóinu ??) spurðum vjer ritstjórn um möguleg tengsl milli KEA og IKEA. Því miður höfum vjer gleymt svarinu að öðru leyti en því að oss minnir að það hafi verið stórmerkilegt.
Máske hefur harða drifið með gamla Gestapóinu dottið í gólfið og allt eyðilagst nema félagsritin?
Voru umræðurnar prentaðar út?
20 þúsund fermetrar........ þvílík martröð !!
Inn í þetta hryllingshús mun ég aldrei mæta
Máske hefur harða drifið með gamla Gestapóinu dottið í gólfið og allt eyðilagst nema félagsritin?
Voru umræðurnar prentaðar út?
Það væri nú hugmynd að prenta út umræðurnar og þekja alla veggi í þessu nýja IKEA með þeim. Þá værum við komin með sérdeilis magnaða gagnageymslu. Ljómar upp
Ertu að mæla með að fortíð okkar verði geymd á veggjum Íkea?
Er ekki góð hugmynd að gera það og halda árshátíðina þar líka ? Þá komast öll alteregó allra gesta örugglega fyrir (einhverjir gestir yrðu að ráða leikara til að leika alteregóin).
Öllu getið þið kvartað yfir.
Dæsir
Hér í mínu frábæra Odense bý ég að IKEA á stærð við Nonnabita, já eða 10-11 í mesta lagi. Ykkur er rétt risavaxin búð þar sem hægt er að KLÁRA heimilið á einu bretti og svo ekki söguna meir næstu 4 árin... en nei! Yfir því skuluð þið hvabba. Á meðan þarf ég að þvælast á milli 18 verslana og panta mér flutningabíl fyrir hvern einasta fótskemil því ekkert fæst á sama stað og nokkuð annað.
Og árans pylsur... hér hjá mér þætti nú bara framför að fá vatnsglas, hvað þá heilu kjötréttina!
-
20 þúsund fermetrar........ þvílík martröð !!
Leggur frá sér kaffibollann og andar djúpt að sér20 þúsund(??!) það eru tveir hektarar(!) einhverntíma mun IKEA verða jafn stórt og píramídarnir, mig minnir að þeir stóru seú sirka 4 hektarar, verður IKEA arfleifð okkar fyrir fornleifafræðinga framtíðarinnar(?) munu Leifar dagsins í dag verða fornleifar framtíðarinnar(?) er hægt að kaupa úlfagærur í IKEA(?) hversu stórt getur eitt IKEA orðið áður en það fellur saman undan eigin massa og myndar svarthol(?) ég legg annars til að þau mörk verði nefn Swen Olsen mörk. Andar að sér og fær sér meira kaffi

Hey, þú andaðir aldrei frá þér. Slær Gvend fast í bakið
Ég var nú á ferðinni ú höfuðborginni um helgina og ekki datt mér til hugar að koma við í IKEA. Ég hugsa að ég hefði þá ekki gert neitt annað! Samstarfskona mín var þó hugaðri en ég og gekk í gegnum gímaldið til þess eins að kaupa nokkra kaffibolla... það tók hana einn og hálfan tíma.
Hvað varð til þess að þessi vinkona þín Gerir viðeigandi gæsalappahandahreyfingar ákvað að fá sér kaffi í IKEA?
Mér skilst að okkar nýja flennifeita vöruhús sænskrar velferðarhönnunar sé tæpast hálfdrættingur á við ættingja þess í heimalandinu. Ég kýs þó að gefa ekki upp heimildamenn mína.
Hvurs lags launung er það? Þorir þú ekki að viðurkenna að þú ert innsti koppur í Sænsku Mafíunni.
Gleraugnamafían maður!
Það var og! Þá höfum við fengið óvéfengjanlegar staðfestingar á því að skipulögð sænsk glæpasamtök hafa náð fótfestu í baggalútíska heimsveldinu.
Þetta kallar auðvitað á enn frekari fjárframlög til hertra lögregluaðgerða, styrkingar öryggislögreglu (ÖLÍS) og samþykktir við lögum sem heimila miskunarlausar pyntingar á borgurum sem líta grunsamlega út í augum yfirvalda.
Leggur fram frumvörp um aukna skattpíningu og skerðingu réttinda í nafni öryggis
Við verðum að stemma stigu við þeirri ógn sem sænska mafían ber með sér. Gera má fastlega ráð fyrir að ólöglegar kjötbollur muni flæða yfir heimsveldið ef ekkert verður að gert. Mafíuna verður stöðva áður en ungdómur heimsveldisins verður ánetjaður af kjötbollum og fer að keyra um eins og brjálaðir bavíanar í Volvóum.
Ég legg til að við gerum innrás inn í IKEA því þar eru áreiðanlega höfuðstöðvar mafíunnar.