Einnig vil ég bæta við að langflestir þeirra sem nota IE 'velja' hann ekki. Þeir nota hann vegna þess að hann fylgir með stýrikerfinu. Margir notendur vita ekki einu sinni af því að nokkuð annað er til. Það er því hæpið að vísa í þessar vinsældir með því augnarmiði að sýna fram á gæði vörunnar.
Já, ætli þetta sé ekki svipað og með Windows sjálft - þetta virkar, flestir nota það, og flestir eru sáttir við það.
Einnig vil ég bæta við að langflestir þeirra sem nota IE 'velja' hann ekki. Þeir nota hann vegna þess að hann fylgir með stýrikerfinu. Margir notendur vita ekki einu sinni af því að nokkuð annað er til. Það er því hæpið að vísa í þessar vinsældir með því augnarmiði að sýna fram á gæði vörunnar.
Það var einmitt þetta sem ég meinti með:
Voru einungis þeir spurðir sem lítið vit hafa á tölvum og hafa ekki hugmynd um að eitthvað annað en IE sé í boði?
Hérna hefurðu prófað System Restore? sem er undir Start->All Programs->Accessories->System tools
ættir að gera "fært" window aftur um nokra daga, áður en að þú sóttit IE 7.
Annars mæli ég með Rebba léttari og þægilegri í notkun.
Þú ert annars með WinXP er það elkki?
Þar sem ég er svo heppinn að vera ennþá með IE 6.0 í vinnunni Blótar hjóðlátlega og rífur kjaft um leið og einhver kemur þá þykir mér vænna að geta slökkt alfarið á sjálfvirkum uppfærslum. Er einhver með leiðarvísinn hvernig það er gert í XPpro Service pakk II ?
og hann er samt "nýari"
Urrar.
Nýrri elsku Gaz, nýrri. Skimar í allar áttir til að gá hvort Ísdrotnningin sé nærri.
Jú það væri í Control panel undirSecurity centre.
og hann er samt "nýari"
Urrar.
Nýrri elsku Gaz, nýrri. Skimar í allar áttir til að gá hvort Ísdrotnningin sé nærri.
Skammast sín alveg herfilega.
Takk öll - ætla í ,,niðurfæringartilraunir" í kvöld.
Og það er alveg rétt - 90% af tölvunotendum vita ekkert hvað er í boði. IE er bara þægilegur því það þarf ekki að ná í hann neitt - hann bara fylgir! Fyrir mitt leyti er ég bara orðin vön honum...
Ef að þú Krumpa ert með svonefnt Windows XP´og hann er þannig stilltur þá er til svokallað "Rollback" á honum... þess virði að athuga hvort það hæfi þínum þörfum
Ah, missti af hinum ágæta pósti frá Kekkonen. Skoða fyrri svör betur næst.
Og já, þó svo að mikill fjöldi manna trúi einhverju, þarf það ekki að vera rétt.
Nákvæmlega. Sjáiði samfylkinguna.
IE 7 er til hreinnar fyrirmyndar. Eftir að ég vandist nýjum staðsetningum heim og hressa takkanna, vil ég ekki snúa til baka.
IE7 er hörmung - allir íslensku stafirnir í póstunum mínum birtast í formi kassa!!! Og það er sama hvað ég hef reynt - mér tekst ekki að breyta því.
Enda skipta gæði forritsins ekki öllu máli - á ég ekki rétt á að ná aftur í forritið sem ég keypti með tölvunni???
Microshoft er, rétt eins og IKEA, verkfæri djöfulsins. Mac hinsvegar, það er allt annar handleggur.
Bara muna það næst vina, ekki vera að eiga viðskipti við djöfulinn, segðu bara nei!