Hér kemur ein, í léttari kantinum eflaust, sem ég samdi í gær.
Haldast nálægt hæll og tær
á holræsunum finnast þær.
Rándýr brauðin rjúka brennd
við Rannveigu er önnur kennd.
Jú hún er létt... en ætla að leyfa öðrum að giska, þar sem ég var alltof fljótur að fatta...
Hún er mjög létt, en þó góð.
Ég var ekki lengi að finna rétt svar, og ætla því að bíða og sjá til, líkt og Skabbi.
Reyndar ekki. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Segjum þá bara rist.
Nei. Enga.
Svona til að klára þessa:
Gefin út við skuldaskil - nóta - reikningur
í skóla er hún gefin - nóta - athugasemd
leggst á nokkur línubil - nóta á nótnalínu
ljúfur tekur skrefin. - sá sem dansar eftir nótum e-s er ljúfur í taumi - hmm - hmm
Útskýring:
Haldast nálægt hæll og tær - Ristar á fótum
á holræsunum finnast þær. - Ristar ... í holræsum
Rándýr brauðin rjúka brennd - Brauðrist
við Rannveigu er önnur kennd. - Rannveig Rist
Samskonar og áðan:
Alltaf gott að gefa það
sú gula var ekki að þrefa það
hent úr fullum hnefa það
heljarmál að efa það.
Stíft?
Mín ágiskun er fræ
Alltaf gott að gefa það - gott er að gefa fræ, frjóvga...?
sú gula var ekki að þrefa það - Litla gula hænan fann fræ
hent úr fullum hnefa það - sáðmaðurinn hendir því úr fullum hnefa
heljarmál að efa það. - til eru fræ sem fengu þennan dóm?
Hmm nei, kannski er ég á villigötum
Mín ágiskun er fræ
Alltaf gott að gefa það - gott er að gefa fræ, frjóvga...? - gott að losa sæði á réttan stað!
sú gula var ekki að þrefa það - Litla gula hænan fann fræ - rétt
hent úr fullum hnefa það - sáðmaðurinn hendir því úr fullum hnefa - rétt
heljarmál að efa það. - til eru fræ sem fengu þennan dóm? - sæði er afkvæmi - erfitt að neita því
Hmm nei, kannski er ég á villigötum
þú ert eiginlega kominn með það- - SÆÐI
Jæja hér er ein, létt frá mér eins og vanalega:
Við járnið löngum líktu menn
í leikhúsum það þekkist enn.
Við jörðina með hælum helst
á haustin oftast illa selst.
Tjald
Við járnið löngum líktu menn - járntjald
í leikhúsum það þekkist enn. - leikhústjöld
Við jörðina með hælum helst - útilegutjald
á haustin oftast illa selst. - tjald
Tjald
Við járnið löngum líktu menn - járntjald
í leikhúsum það þekkist enn. - leikhústjöld
Við jörðina með hælum helst - útilegutjald
á haustin oftast illa selst. - tjald
þegar ég sendi þetta 1/2 tíma of seint þá var ekkert svar komið - jæja skítt með það
Takk fyrir það Gimlé - en ég átti eftir að hrósa Hvurslags fyrir að ráða mína gátu - sem ég held að hafi verið nokkuð snúin
en þin gáta Gimlé - er þetta eitt og sama orðið í hverri línu?