Ingólfur til Íslands fluttir
öndvegissúlumeyjar
Ennþá finnast ósköp stuttir
upprifnir hreinir peyjar.
Guttormur í garðinum
gat við kvígu Hjörleif.
Hjörleifur er heiðursmaður,
heljar kommúnisti.
Mynd hans ber ég býsna glaður
á brjósti mér, í nisti.
Geiri harði hefur tök
á herjum Bjössa noju.
Geiri harði hefur tök
á herjum Bjössa noju.
Stundum bítur sekan sök,
seint hann fer í koju.
Ég er soddan öryrki
ef ég kemst í stuðið.
Ég er soddan öryrki
ef ég kemst í stuðið.
Aðeins reyndur rafvirki
rýfur ljóða- tuðið.
Skautum rafs hann skyndilega
skellir beint á hausinn þinn.
Skautum rafs hann skyndilega
skellir beint á hausinn þinn,
það mig gerir tafs og trega,
tætingslega vinur minn.
Með hamri fast í hausinn sló
á hrússa ,Gvends og Bínu,
Með hamri fast í hausinn sló
á hrússa ,Gvends og Bínu,
Gvendi varð þá um og ó
með ofsa magapínu.
Allir hlera alla enn
allir eru´að hlusta
[obbobb... stuðlavillur eins og Glundroði bendir á... Skabbi]
Stuðlavillur í báðum braglínum fyrripartsins hér að ofan. Hleyp þvi yfir á þarnæsta.
Með hamri fast í hausinn sló
á hrússa ,Gvends og Bínu.
Hreykinn Rabbi í húsið dró
hjá Halla Ben og Stínu.
Aldur vor er afstæður
eins og dæminn sanna.
Aldur vor er afstæður
eins og dæmin sanna.
Eftir nokkrar orðræður
ég áratugi spanna.
Aldrei var ég ungur mjög.
Elliþrungin sálin.
Kínaland er fjarlæg fold
fámenni þar býr
Grjón þau rek'í raka mold,
rækt þjóð áfram knýr,
Á Indlandi er enginn maður,
eyðimerkurfjandi.
Bjart er yfir Bangaladess
bændur krókinn maka
tætir allt þar tígursfress,
tíu manns - ein kaka.
Garnaflækjur iðrum út,
ýmsar rottur naga.
Garnaflækjur yðrum út
ímsar rottur naga,
brennivin og bærings grút
bölið fljótt mun laga.
Fæðan rengi af hval er holl
hæfir vel um jólin,
Pönduket og pardusstöppu
á pönnu vil ég steikja
frekar vil ég ketin knöppu,
kæla smá og reykja.
Risaapinn reyktur smá,
með rófustöppu borða
Risaapinn reiktur smá,
með rófustöppu borða.
gamlan hund og högna þrjá
hef sem vetrar forða.
Yfir leggst húmið lengist nótt
læðast pör um bæinn,
Yfir leggst húmið lengist nótt
læðast pör um bæinn,
Æði þau taka - úlfasótt,
og éta fögur hræin.
Yfir landi lægðir valda,
leiðindi og fönnum.
Skjótt í lofi skipast veður
skýin kverfa, byrtir enn,
vetur harnar og fönnum hleður
hugum að því góðir menn.
Dymmir í lofti drunga skí
drunur heirast víða,
[obbossí... í botninum eru báðir stuðlar í lágkveðu... mundu bara að í venjulegri vísu er stuðull í þarseinasta áherslulið... þar sem fönnum er hjá þér... Skabbi]
Skjótt í lofti skipast veður
skýin hverfa, birtir enn
klappa skaltu rjóðan reður,
rismikill þá verður senn.
Lappy hressy lýttu á
lýfyð það er fýnt
ipsilonið átt'að sjá,
eða var það tínt?
Allt í rugli, orðabók,
ætti nú að kaupa.
Orðabók þeim illa nýtist
er ekkert kann að stafa
Hel- þú veginn ferð til -vítis
svo vitni ég í afa.
Lágkveðan er ljót og slæm
látum hana róa,
[obbobb... ef þú hefðir farið eftir því sem fyrriparturinn þinn segir, þá væri botninn þinn næstum í lagi... stuðlar í lágkveðu og rímið lélegt... Skabbi]