Ég þarf ekki að vera staddur í einhverri martröð í augnablikinu. Ég er a.m.k. ekki orðinn virkjanasinni ennþá
kveðja,
Já en það kemur ekkert fram hvernig veðrið var á Þingvöllum. Og eru þessir vírusar ekki bara eitthvað nýmóðins frat sem enginn vill?
Nei, vírusarnir breiðast í líkami fólks án vitundar þess vegna þess að það er statt á þessum svæðum og vírusarnir þurfa hýsla,
Vírusarnir eru ónæmir fyrir öfgum í veðurfari. Bandarískur vísindamaður prófaði þolgetu Morgellons-orma undir 40 gráðu frosti og þeir gátu vel þolað frostið,
þá reyndi hann að prófa þá undir mjög miklum hita sem einnig gekk upp. Þá kom í ljós að sumir þessara orma höfðu borist til Jarðar með loftsteinum utan úr geimnum. Svo að af hverju ekki vírusar sem gætu valdið álæði? Það hljómar fullkomnlega rökrétt í mínum eyrum sem möguleiki.
kveðja
Úlfamaðurinn er var við að e.k. innri ótti manna við að heimsækja pistil sinn um veirur sem staðsettar kynnu að vera nálægt háhitasvæðum hafi orðið til þess að engin skrif hafi átt sér stað á síðunni upp á síðkastið. Úlfamaðurinn bendir Baggalútingum á að þó að engir vírusar séu staðsettir í Reykjavík svo að hann viti til sé það hins vegar jarðskorpan undir svæðinu sem sé vandamál. Úti á landi mun vírusavandinn aukast enn meir eftir því sem fólk fer að forðast að vilja snerta hvort annað af ótta við að fá orkuvera eða virkjanavírusa
Ef ég hefði lyklavöld að þessu svæði þá myndi ég hiklaust breyta nafni þráðarins í ÚLFAMENN SJÚKLEGA HALDNIR MÁLÆÐI!!!
Flestir þeir úlfamenn sem ég hef séð í kvikmyndum hafa reyndar verið haldnir sjúklegu brjálæði, en með Wolf´s Rain þá hafa þeir verið læknaðir með duglegri, asískri sprautugjöf.