Djöfulsins bull. Við erum heimskt veiðimannasamfélag.
Endilega skjóta allt sem á augans leið liggur og stuðla að hnattvæðingu mannkynsins!
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær: Múhaha!!!
Þvílíkur rass á þér Siggi beib! Lommér snert´ann.
Þetta er of kinkí fyrir mig.
BLÁSTAKKUR! Ljómar upp
Hvar hefur þú verið gamli vin? Eru nú illir menn loksins að koma saman aftur?
BLÁSTAKKUR! Ljómar upp
Hvar hefur þú verið gamli vin? Eru nú illir menn loksins að koma saman aftur?
Djöfull ertu alltaf kinkí... hehe...
Ég er hlinntur hvalveiðum. Við erum ekki að ganga nærri hvalastofnum. En því miður eru til vanheilir umhverfisöfgamenn sem snúa öllu á haus og taka engum rökum. Hvalir eru svo gáfaðir og stórkostlegir. Ég mæli með að við tökum þessa grasasna og hendum þeim í hafið. Leyfum þeim að svamla með þessum ástkæru vinum sínum.
Svo er hrefnukjöt líka gott. T.d hrefnupiparsteik og hrefnubuff.......
Það er akkúrat svona málflutningur sem er þess valdandi að ég er á móti hvalveiðum. Kristján Loftsson og Nermal telja alla sem eru ósammála sér vera vanheila.
Eru kannski Kristján og Nermal einn og sami maðurinn?
Hvalveiðar við Íslands strendur eru nauðsynlegar til að halda jafnvægi í sjávarríkinu. Það er ekkert vit í því að leyfa veiði á einni tegund sjávardýra en ekki annari.
Hvalurinn étur þorskseiði og það er meðal annars þess vegna sem þorsk hefur fækkað. Annað hvort veiðum við allt sem að kjafti kemur í sjónum okkur til viðurværis eða þá við sleppum því algerlega að nýta okkur það sjávarfang sem er okkur næst.
Föðurland vort hálft er hafið.
Þetta er nottlega mesta þjóðerniskjaftæði sem ég hef heyrt lengi. Ef það er enginn markaður fyrir hvalkjöt, ef enginn vill kaupa það af okkur - til hvers í andskotanum er þá verið að veiða hvali? Jú, til að fullnægja þjóðerniskenndinni. Hvað verður það næst? Fálkaveiðar af því við megum gera hérna það sem okkur fokkings sýnist?
Þjóðerniskjaftæði að veiða hval? Aðra eins rökleysu hef ég aldrei heyrt. Hvalveiðar hafa ekkert með þjóðarrembu (nasisma) að gera.
Fullnægja þjóðerniskenndinni? Hvaða fokkings þjóðerniskennd ertu að tala um? Mér væri nokk sama hvort ég væri Norðmaður eða Japani, það breytir engu um afstöðu mína til hvalveiða.
Já já haltu bara áfram að lesa markaðshyggju kónginn þinn Milton Frídmann eða hvað hann nú heitir. Næst skaltu koma með betri rök á móti hvalveiðum, en ekki ásaka mig um þjóðerniskjaftæði.
Já, föðurland okkar hálft er hafið.
Það þýðir eins og þú sjálfsagt veist, að það land sem við búum á og er fast undir fótum okkar, þessi eldfjallaeyja, nær ekki nema hálfkvist á við hafið í kringum okkur sem við höfum fullan rétt á að nýta okkur til viðurværis.
Einmitt. Og gerum það, hvað sem umheiminum kann að þykja um það af því við erum svo góð með okkur.
Ef hvalveiðarnar væru að leggja eitthhvað til þjóðarbúsins, myndi ég samþykkja þær.
"Föðurland vort hálft er hafið"? Hafið er þarna nafnorð en alls ekki sagnorð, var misskilningurinn þinn þar?
Alls ekki. Þetta er eins og með virkjanirnar og vatnsföllin. Við eigum árnar og fljótin en megum virkja allt sem rennur ef við viljum en það er ekki þar með sagt að rétt sé að gera það. Sama á við um auðlindir hafsins; þær eru þarna og við ráðum yfir þeim en það þýðir ekki endilega að við eigum að veiða allt sem syndir.
Einmitt. Og gerum það, hvað sem umheiminum kann að þykja um það af því við erum svo góð með okkur.
Ef hvalveiðarnar væru að leggja eitthhvað til þjóðarbúsins, myndi ég samþykkja þær.
Við þurfum ekkert að vera góð með okkur, þó svo að "umheimurinn" sé ekki fullkomlega sáttur.
Hvalveiðar eru partur af okkar menningu, Hvalurinn er matur sem foreldrar og forfeður okkar þóttu búbót að fá.
Saga hvalveiða á Íslandi á sér merka sögu og hélt lífi í ýmsum samfélögum á landinu um þarsíðustu aldamót og seinna.
Hvalveiðar leggja það til þjóðarbúsins að viðhalda þekkingunni á hvalveiðum og það að þróa þær veiðar. Auk þess er gífurlega mikill og góður matur í einum hval.
Bíddu nú hægur - hvenær byrjuðum við að veiða hval? Norðmenn veiddu hann hérna fyrir um 100 árum síðan og Hollendingar þar áður. Forfeður okkar átu rekinn hval að því ég best veit. Held að við höfum byrjað hvalveiðar 1948.