Þykja myndirnar sem hann hefur leikið í vera frekar ómerkilegar ?
Ekki allar, en þetta er náttúrulega afstæðast af öllu afstæðu...
27 stig
Byrjar fornafn hans á bókstaf sem er aftar í stafrófinu en M ?
Ef þetta er ekki Patrick Wayne Swayze þá ætla ég að gerast svo frakkur að leggja fram vantraustsyfirlýsingu á þennan leik, að annað hvort sé þessi ákveðni einstaklingur ekki til eða þá að einhversstaðar leynist rökvilla í svörunum (eða spurningunum) á þessum þræði. Strunsar fram af sviðinu og lendir á höfðinu
Mikið rétt!
Glæsilegt, Glúmur! Þér eruð augljóslega afar magnaður einstaklingur.
Þér gætuð meira að segja verið frændi minn...
Næsti leikur í hinni sívinsælu Leikjaröð Spesa er væntanlegur á morgun, fimmtudaginn 2. október 2003.
Sæl að sinni.
Mikið rétt!
Glæsilegt, Glúmur! Þér eruð augljóslega afar magnaður einstaklingur.
Þér gætuð meira að segja verið frændi minn...
Næsti leikur í hinni sívinsælu Leikjaröð Spesa er væntanlegur á morgun, fimmtudaginn 2. október 2003.
Sæl að sinni.
Jah í fyrstu hugsaði ég með mér að harla ólíklegt sé að ég sé svo frændsæll, en eftir að hafa lesið Frændljóð 7 fór ég að efast um einlægni þessara vangaveltna hjá þér Spesi.
Ég mun þó líta í Íslendingabók við fyrsta tækifæri og athuga hvort ég finn þig þar, þætti mér þá Ísland orðið lítið ef ég ætti frænda á "Internetinu".
Í mínum huga telst það til hróss að vera álitinn frændi minn.
Sumir frændur eru bara erfiðari en aðrir, sbr. Frændaljóð 7...