Siggi er afar kvenlega vaxin.
Útvarpsstjóri er með einstaklega góða sjón, hann getur séð vöxt fólks á andlitsmynd. Fyllist aðdáun
Svo er hann bara svo skemmtilegur og góður kall sem á alltaf nammi í hanzkahólfinu og lánar manni pening fyrir bíóferðum.
Sundlaugur er obboslega góður gaur sem er gott að knúsa þegar hann er ekki of önugur.
Hann hefur líka skemmtilegan húmor.
Hún Tigra er eins og öll góð tígrisdýr, ofsalega loðin... og finnst gott að borða önnur dýr og ... eh... öskrar hátt. Æhh, ég er ekkert sérstaklega flínkur í þessum leik. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Offari er góður með uppstúf og grænum baunum.
Útvarpsstjóri er góður með kampavíni, vindlum og flugeldum
Coca Cola er betri í þessum leik en það áttar sig á. Það gefur manni orku og er líka gott með pulsu.
Litla Laufblaðið er voðalega hresst og frískt laufblað. Það svífur um loftið, sk´rautlegt og skemmtilegt og tekur fallegar ljósmyndir. Svo talar það vel um mig (líklegast út af einu félgasritinu mínu) - sem er merki um miklar gáfur.
Litla Laufblaðið er voðalega hresst og frískt laufblað. Það svífur um loftið, sk´rautlegt og skemmtilegt og tekur fallegar ljósmyndir. Svo talar það vel um mig (líklegast út af einu félgasritinu mínu) - sem er merki um miklar gáfur.
Ef þú ert að meina félagsritið um ástúðlegar flengingar þá JÁ!Roðnar
Hlebbi er orðin svakalega krúttaralegir þessa dagana. Sannur herramaður. (Fyrir utan þetta með eintöluna.. og stundum kynið.)
Undir Súð virðist vera efnilegur nýliði er eigi lætur vaða á súðum að óþörfu enda kann það að vera erfitt sje verið undir súð eingöngu.
Vlad er ógisslega sætur
Rekur forsetanum rembingskoss á rassinn
Dalai er hresst dýr með afburðar hæfileika í spýtingum. Kann vel á mállískur á borð við flámælsku og þar af leiðandi geðveikt töff.
Laufblaðið er alltaf hresst og kátt. Engu skiptir hvort það er staðsett í hérálandinu eða í útlandinu.
B Ewing er okkar mesti spámaður, þó svo að Úlli sjái lengra fram í tímann.
Dularfulli maðurinn er svo dularfullur að við vitum óskaplega lítið um hann. Samt þykir mér vænt um dularfulla manninn. Hann er svo skemmtilega dularfullur og svo minnir hann mig á "Dulalrfullu-bækurnar" eftir Enid Blyton og þá rifjast upp skemmtilegir og áhyggjulausir tímarLjómar upp.
Við getum öll þakkað Sundlaugi fyrir að bjarga okkur frá drukknun hér á Gestapó.
Hann er góður maður sem lætur ekki vaða yfir sig né neinn í kringum sig.