Risastóran rafmagnsbíl og einhvern sem þráir mig kynferðislega einhvern annan en Dúdda frænda.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Að jólin verði haldin í nóvember, líkt og flestir Bagglýtingar gerðu árið 2003. Dagsetningin 11. nóvember kemur sterklega til greina.
Hlammar sér í fangið á Willa
Uppblásna kærustu sem kann ekki að tuða.
Frið á jörð, demanta (alveg glás), og einbýlishús. Austin mini kemur líka sterkur inn...
11. nóvember hljómar mjög vel - en hvað á maður þá að gera þegar restin af fjölskyldunni heldur upp á sín jól?
Orð upp, orð upp.
Hvað ertu að meina?
Kannske meinti hann "Skraut upp, skraut upp"
Ég elska jólin. Þau eru frábær, vildi óska að þau væru lengri.
Í jólagjöf langar mig í fellihýsi.
Mig langar til að kaupa heimili handa heiminum og innrétta það með ást.
Rækta eplatré og býflugur, og snjóhvítar turtildúfur.
Mig langar til að kenna heiminum að syngja í fullkomnum samhljómi.
Mig langar til að kaupa kók handa heiminum og halda honum félagsskap.
Rauðbjörn biður um fellihýsi, ég væri sáttur við upphækkaðan tjaldvagn.
Mig langar til að kaupa heimili handa heiminum og innrétta það með ást.
Rækta eplatré og býflugur, og snjóhvítar turtildúfur.
Mig langar til að kenna heiminum að syngja í fullkomnum samhljómi.
Mig langar til að kaupa kók handa heiminum og halda honum félagsskap.
Þú ert at auglýsa fyrir Vífilfell!
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Æji, mér finnst jólin hálf-leiðinleg.. enda á ég tvö sett af foreldrum og u.þ.b 5 systkini.. eða voru þau 6? Jæja, gjafakaup og vesenið í kringum það allt hefur takið sinn toll af ánægjunni. Ég væri sátt við að sleppa gjöfunum alfarið og hafa bara góðan mat.
En já, ég veit a.m.k. hvað ég hef enga lyst á að fá í jólagjöf; Handklæði. Ég veit að fjölskylda mín þekkir mig lítið, en er of mikið að biðja þau um að hugsa um, segjum kannski jólabókaflóðið, hm?Blótar herfilega og rífur hár sitt