Það er ekkert grín að eiga díselbíl og þurfa að borga þungaskatt.
Harðlyndur er heimtumaður Geir H. Haarde.
Af mér hirti allt í skattinn.
Eykst mér árans fjárhagsbrattinn.
Einu sinni bjáninn vildi báknið burtu.
Það var fyrir langa löngu.
Lítið get ég greitt af öngvu.
Geira sjóður græðir sem á gulli ormur.
Saman rakar aurnum okkar.
Auðvaldspúkinn yfir vokkar.
Dignar sjóður er dísel- set ég gang í -drekann.
Þurrkast mætti af Geira glottið
og gjarnan leggja niður skottið.