Í fyrsta sinn í sögu Baggalútíu erum vjer lentir í alvarlegum vandræðum með að ákveða hvort handtaka beri ónefndan aðila fyrir hryðjuverk í þágu óvina ríkisins eður ei. Þannig er mál með vexti að fyrir stuttu barst oss mikið magn geitaskíts eftir leiðum er ei verða gefnar upp hjer þar eð þær eru ríkisleyndarmál. Munu fleiri aðilar, m.a. einhverjir í ríkisstjórn Baggalútíu, einnig hafa fengið geitaskít. Þetta myndi að öllu jöfnu þýða að sá aðili er að þessu stóð færi umsvifalaust á listann yfir óvini ríkisins og yrði handtekinn fyrir hryðjuverkastarfsemi en því miður er málið eigi svo einfalt. Skíturinn reyndist innihalda mikið af kóbalti og var því afar gagnlegur. Höfum vjer sent ónefndum aðila er málinu tengist sýnishorn af því hágæðakóbalti er unnt reyndist að vinna úr skítnum.
Opnum vjer hjer með á formlega umræðu um þetta grafalvarlega mál, þ.e. hvernig bregðast beri við og hvernig öryggi baggalútíska ríkisins verði best tryggt. Væri allt með felldu væri Þjóðaröryggisráð Baggalútíu hinn rjetti vettvangur en það er því miður ei til. Líklega hefur gleymst að stofna það. Skál !
Ég er eitt af fórnarlömbunum í þessu máli, en ég vil hvetja fólk til að fara sér í engu óðslega, þar sem aðili sá er fyrir skítkastinu stóð er hugsanlega ekki ábyrgur eigin gjörða. Ég legg til að skorið verði úr um það með formlegum hætti áður en lengra er haldið.
Æ ég sem hélt að þetta væri blómaáburður. ég gaf kókoshnetutréinu allan kúkinn.
Ég varð fyrir sama áreiti. Ég hallast að því sem Þarfi segir. Mig grunar að gerandi sé óviti.
Voru... voru þetta ekki bláber?
Kúgast
Krossfestum helvítis geitina!
Ofan á áðurnefndan geitaskít virðist sem óvinir ríkisins sjeu að reyna að stela Gestapó. Ef vjer reynum að komast á síðu 2 í Baggalútíu fáum vjer kurteislega orðaða tilkynningu þess efnis að eigi sje þar neitt að finna Klórar sér í höfðinu.
Hvaða bláleiti keimur er yfir Gestapó í dag. Ég sé engar myndir og bakgrunnurinn er dökkblár. Geitaskíturinn hefur víðtækari áhrif en ætla mætti.
Ekki sé ég blátt. Hugsanlega eru óvinir ríkisins að beita sálfræðihernaði; brengla Gestapó hjá sumum, en öðrum ekki, í þeim tilgangi að valda deilum og sundrungu. Við verðum að standa þétt saman á þessum erfiðu tímum. Ég get hins vegar staðfest að síða 2 í Baggalútíu er ekki lengur aðgengileg. Hvað er hægt að gera til að endurheimta hana?
Notaði þennan meinta geitarskít sem áburð á mannætuplönturnar mína og þær dafna sem aldrei fyrr.
Ljómar upp
Hinsvegar er ekkert að finna á bls 2 á Baggalútíu og staðfesti þar með grun Þarfa og fleiri sem hafa látið þetta í ljós.
Ljómar niður.
Bíræfnir óvinir ríkisins hafa fiktað eitthvað í stillingum vafrarans hjá mér með fyrrnefndum afleiðingum. Allt er komið í samt lag en ég þrái hefnd!
Og já, bls. 2 er galgapandi tóm.
Óviti eða ekki, eina ráðið er að tjóðra geitina og smíða skál sem mun vera firir aftan hana öllum stundum og úr skálinni verða leiðslur í forsetahöllina þarsem Vlad getur gert tilraunir að vild.
Þú hefur bandið mitt!
Fellur á kné og reiðir fram band
Taka hana í fjósið ?Klórar sér í höfðinu
Ég hef heyrt um að hommar taki hvorn annan í fjósið, en mér finnst þú vera ganga aðeins of langt Offari.
Og Þarfi, ætlar þú að vera með ?Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Öhh ...
Ég ætlaði nú bara að gefa honum bandið mitt svo hann gæti notað það.
Læðist varlega í burtu
Það sem er samt sennilega sjúklegast við þetta athæfi er að umrædd geit hefur farið í þetta verkefni með það að sjónarmiði að særa sem allra flesta. Hún sendi mér nefnilega einmitt ekki skít og finnst mér ég vera skilinn útundan og er núna voðalega sár. En ég er einmitt vanur að mykja ákveðnu magni af skít framan í mig áður en ég mæti til vinnu.