Nýjasta rit David Icke heitir White Mice Rule, og er 650 blaðsíðna langt og fjallar um stuðning Bandaríkja-manna og Breta við innrásina í Írak og framtíðaráætlanir The Illuminati um frekari heimsvaldsstjórnun. Icke heldur fram í bók sinni White Mice Rule; How Two White Mice Rule the World and not Shape Shifting Reptilians as I believed Previously; or Towards a Future of Spiritual Economy, að hann hafi tekið ákvörðun sína um titilinn eftir að hafa séð The Hitchiker´s Guide To the Galaxy. ´Mér fannst þetta frábær ákvörðun, ég las frétt á www.rense.com þess efnis að skriðdýrum og froskdýrum væri stórlega ógnað eftir fyrri skrif mín og því ákvað ég að einbeita mér þess í stað að samsæriskenningum þar sem dýr koma við sögu sem nóg er af, svo sem hvítar mýs´.
Nú þegar hafa 250 breskar og bandarískar bókaútgáfur veitt leifi til útgáfu á bókinni og verður hún gefin út að mestu leyti í rafrænu formi.
Lestu einkapóstinn sem ég sendi þér!!!
Ef þér er litið hægra megin á skjáinn, efst. Þar má sjá lista þar sem stendur:
* Gestapó
* Athvarf yðar
* Ritstörf yðar
* Niðurskipan
* Póststöð
* Félagsrit
* Heimavarnalið
* ÚTFÖR
Smelltu á póststöð og lestu póstinn þinn þar.
ÞAð var verið að segja mér til, málið var það að ég sendi enga mynd af mér og þess vegna þá hafði ég verið að semja pósta á stöðum á síðunni þar sem ekki átti við. Ég má semja pósta á Málstofunni. Síðar meir verður síðann eflaust stækkuð. Dúddi hefur tjáð mér að hann sé á móti öllu sem kallist frjáls almenningur annars vegar og kommúnismi hins vegar, svo ég hef eflaust dottið inn á kolranga síðu. Engu að síður tek ég ekki mark á Dúdda þegar hann segist vera á móti frjálsum almenningi því að þá er hann væntanlega á móti eigin frelsi, og það veit ég að hann er alls ekki.
Ég veit ekki hvort ég skrifi mikið meira á Lútinn sem komið er, en það er ekki vegna móðgunar eða neins slíks. Ég þakka öllum fyrir og legg áherslu á mikilvægi frelsishugtaksins og að ég sé sjálfur ekki kommúnisti, þar af síður Vinstri Grænn þó ég hafi gefið Vinstri Grænum ráð upp á 24% fylgi engu að síður.
Ég sendi mynd af mér seinna og hún verður máluð mynd, sem þið eigið eftir að verða hrifnir af. Hún er að verða hálfnuð sem stendur.
Fyrirgefðu að ég hafi kallað þig Vinstri grænan, ég veit vel að það er ljótt að segja svona.
Sá er grænn og ekki batnar það að hann er hálfur. Sé fyrir mér mynd sem er græn vinstra meginn. Hvað líður hinum helmingnum?Horfir hugsi á nýja fljatskjáinn og maular flatköku.
Ég er reyndar að átta mig á að Úlfamaðurinn er mikill hugsuður en eins og sagt er: Enginn er spámaður í sínu föðurlandi. Það hef ég nú aldeilis mátt reyna hér! En eins og fyrr segir: Þessar djúpu hugleiðingar og kenningar Úlfamannsins eru snilld og sennilega er hann yfirburðamaður hér (undanskil mig).
Hvar annars staðar ætti hann að hafa fengið hugmyndina eftir að viðurkenna að hann hyggðist byggja rit sitt á hugmyndum Douglas Adams um heimsstjórnun og gæðastjórnun, gæðaeftirlit og ýmislegt fleira í þeim dúr?
Þess vegna er og verður Douglas Adams alltaf betri en David Icke, og Icke getur alltaf hætt að fylgja í hælunum á Douglas heitnum hvenær sem hann vill.