Ég er að elda mat. Heima. Það gerist stundum.
Ég líka. Hann er alveg að verða tilbúinn. Eins gott, enda er ég orðinn sársvangur.
Er að reikna Línulega Algebru fyrir TGRAF í RU. Hún er skemmtileg og auðveld þannig séð.
Starir þegjandi út í loftið
Ég man eftir línunni. Hún er vibbi.
Ég er að teikna Ljómar upp
Eitt sinn var ég út á Þjóðarbókhlöðunni. Við eitt skrifborðið sat dasaður maður á grúfu yfir bók. Á spjaldveggnum fyrir ofan hafði hann sett lítin miða þar sem stóð:
Línuleg algebra er skemmtileg.
Það þótti mér fyndið.
Bursta á mér tennurnar svo að ríkið þurfi ekki að greiða tannlæknum fyrir störf sín.
Vjer erum að fagna vel heppnaðri laumupúkastarfsemi hjer á Gestapó Ljómar upp og sýpur á fagurbláum laumupúkadrykk (*).
(*) Sýnt hefur verið fram á að laumupúkadrykkir eru óhjákvæmilega kóbaltblandaðir og eru þeir þar af leiðandi ávallt fagurbláir
Ég er að fara að klæða mig.
Rennir upp tígrisdýrafeldinum
Ég er að pirrast endalaust mikið yfir þessari skíta vinnu minni!!!!
Helvítin borguðu mér of lág laun annan mánuðinn í röð! Ég er ekki einu sinni ennþá búin að fá það sem þau skulda mér síðan í ágúst. Blótar herfilega og rífur hár sitt,strunsar svo út af sviðinu og skellir á eftir sér
Klappar Laufinu á öxlina Svona, svona.
Annars er ég að fara að byrja helgina!
Taka mér pásu frá próflestri.
Akkúrat núna er ég bara að vera svolítið, eða sko örlítið, pínupons haugadrukkin.
Fara hella uppá þriðja kaffitankinn síðan á miðnætti. Stekkur hæð sína
Var að koma heim úr prófi!
Hoppar hæð sína
Til hamingju. Er svo ekki fyllerií í kvöld?
Ljómar upp