Jahérna hér.
Ég var í rólegheitum að lesa um Ísland á uncyclopediunni:
http://uncyclopedia.org/wiki/Iceland
...og þar rakst ég á eftirfarandi link um Baggalútíu:
http://uncyclopedia.org/wiki/Baggalútía
ÞAÐ ER VERIÐ AÐ NJÓSNA UM OKKUR!
Vjer minnumst þess að á gamla Gestapóinu var þráður um efni þetta þar sem fram kom að síða þessi var samin af Bagglýtingum. Oss minnir að m.a. Isak Dinesen eigi hjer hlut að máli en um misminni kann þó að vera að ræða. Hitt munum vjer með vissu að vjer bættum einhverntíma lítillega við þetta eftir að vjer frjettum af þessu.
Ég var að laga stafsetningavillu. Helvítis blaðasnápar geta aldrei gert neitt almennilega.
Hvað segirðu? Var þetta skrifað af Bagglýtingum?
Ég meina auðvitað að þetta voru skiljanleg og smávægileg mistök.
Mig minnir að Dúddi okkar eigi hlut að máli...
Vígbúumst bara samt! Það er alltaf óvinur einhverstaðar!
Leyniþjónustan er á fullu við það að vera full, þannig þjónar hún hagsmunum Baggalútíu langbest.
Þ.e.a.s. ef hún væri til... hún er nefninlega svo leynileg að það má segja að hún sé ekki til.
Hvað var ég aftur að tala um? Hmm...
Tigra;
Ég er marg oft búinn að benda Baggalútíumönnum á að einstaklingar með sambönd við stjórnvaldið hér hafi stofnað vefsíðuna. Því eru ekki til frjálslega reknar vefsíður sem stendur. En það stefnir allt í að þær verði til. Langar einhverjum til að vita hvernig Bandaríkin verða árið 2036?
Verður að leyfa sér að vera sammála Hvæsa að þessu sinni
Afþakkar þetta boð einnig pent
Slæmt. Þá horfið þið og njósnararnir einfaldlega á mig breyta innanríkisstefnu landsins næstu daga svo að það verði ekki lengur neitt vandamál með forseta þar a.m.k. fram að þeim tíma. Ég er að fara að semja bréf til Margo Le Breton sem bíður spennt eftir innihaldi þess. Um leið og hún fær það fer Karol sendiherra að grenja.
En Kasper, Jesper og Jónatan?