Og svo er klerkurinn farinn að nota erlenda stafi... það er aldeilis slegið um sig...
Það hefur einhver skipt um á skrána á kirkjudyrunum.
Reynir að opna.
ÍÍÍÍÍvaaaaar!
In nomine Patris, et Filii, et Spiritus Sancti.
Amen.
Er í lagi að koma með skurðgoð með sér hingað inn?
Ég ákalla goð og góða vætti, Þór þú mikli jötnaskelfir gef mér styrk til að brjóta niður hurð þessa!
Tókst þetta?
Hurðin haggast ekki.
Ætli þú þurfir ekki að sækja guði úr fleiri áttum ef þetta á að takast.
opnar með stafræna lyklakortinu og gægist syfjaður út um dyrnar og er ekki hress með barninginn
HVAAAÐ?!
Heill Dagur,
heilir Dags synir,
heil Nótt og Nipt!
Óreiðum augum
lítið okkur þinig
og gefið sitjöndum sigur!
Heilir æsir,
heilar ásynjur,
heil sjá in fjölnýta fold!
Tek upp tvær hænur og fórna þeim, sletti svo blóði á kirkjuhurðina frem hrikalegan gjörning og magna upp aflæsingar galdur.
Dett svo örmagna niður.
Hafðist þetta?
Horfir forviða á þegar Ívar opnar og Grámann dettur inn um opnar dyrnar.
Ad Deum qui laetificat juventutem meam.
Skríð örmagna uppá innsta bekkinn og sofna með aðra hænuna í fanginu.
Og sjá! Hin hvíta dúfa rís upp! Ja, eða hæna. Hverjum er ekki sama?
nær í messuvínið
Hérna síra minn, fáðu þér einn...
Í guðs og jesús góða nafni
gómsætt vín ég þarf að fá.
Allri synd þá held ég hafni
herrann á það stóla má.
Vertu stuðfaðir, faðir minn
í parkódín forte nafni
lyf þín leiði mig út og inn
svo edrúmennsku ég hafni
AMEN!
Ó Jesú bróðir besti,
bjóddu mér í glös;
fimm á korters fresti
og feita lín' í nös.