Var á tónleikum um daginn með ekta metal hausum frá svíþjóð. Entombed... Þrusu þétt og gott show. Hellir í glasið hjá Ívari
Það hlýtur að hafa verið gaman! Svíar eru svolítið fyrir það að halda rock festivöl...
Þetta var nú bara á Nasa fyri um viku síðan.
jájá... en þeir eru samt mikið fyrir að halda festivöl sko... annars komst ég ekki á þessa tónleika þó mig hafi langað skelfilega!
Reyndar eru þeir það jú. Þótt að Bretland sé með vinningn í ár. Downloads festival.
hahaha... Mikið djöfulli langar mig á eitthvað af öllum þessum festivölum... en þar sem engin er vinnan og þar af leiðandi engar tekjur þá verður það að bíða enn um sinn.
Maður gæti krúsað heiminn og farið á milli. Endað á Airwaves. En til þess þarf svona miljón í mánaðarlaun og 3mánaðar sumarfrí.
Já og tíma til að fara í golf með forstjórum til að eiga meiri möguleika á hærri launum...
Ef þetta kallar ekki á bjór. opnar tvo og gefur ívari ein. skálxT
þakka... þambar bjórinn í einum teig
en nú þarf ég að leggja mig fyrir messu morgundagsins...
þakka... þambar bjórinn í einum teig
en nú þarf ég að leggja mig fyrir messu morgundagsins...
EYMINGI !!!!
Opnar öl
Bíð góða nótt. Er reyndar bara 1 tími eftir af vaktinni.Gefur frá sér vellíðunarstunu
Var á tónleikum um daginn með ekta metal hausum frá svíþjóð.
Það hlýtur að hafa verið gaman! Svíar eru svolítið fyrir það að halda rock festivöl...
Ég bið menn um að átta sig á því að þeir eru í kirkju og eiga því að halda svona umræðum utan dyra. Það eru þræðir hér þar sem má ræða um tónlist djöfulsins. Til dæmis einhver lágkúruþráður þar sem "menn" monta sig af að spila á eitthvað.
Hristir hausinn og skilur ekkert í kantornum.
Þar fyrir utan átt þú að vera að hita upp kórinn hr. Sívertsen.

Ég vil biðja sírann að hafa sig hægan! Kórinn er löngu upphitaður en vandinn við kórinn að hann hefur lítið mætt. Ég söng hér eins og engill þegar messan hófst en þú varst þá auðvitað steindauður niðri í kjallara eftir að hafa í stresskasti þambað þrjá kúta af messuvíni!
Kva... er sírann enn áfengisdauður og einleikarinn farinn í verkfall?
Ja virðist sem hann hafi drepist aftur. Glottir
Það er aldeilis messerí hér... eða á maður að segja messufall?