— GESTAPÓ —
Plútó ekki látinn
» Gestapó   » Almennt spjall
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Úlfamaðurinn 17/9/06 11:23

Ágætu Baggalútingar,

Ykkur er hér með kurteisislega tilkynnt um leiðréttingu á misskilningi þess efnis að Plútó sé látinn. Staðreyndin er sú að hann er alls ekkert látinn. Tilraun til að gera krufning leiddi í ljós að ekkert lík fannst á rannsóknarstofunni og tiltölulega langann tíma tók að sannfæra líkskoðarann um að um reikistjörnu væri að ræða. Líkskoðarinn fékk sér stjörnukíki og sagðist sjá lítinn frosinn klump sem sé ekki lengur á skrá sem reikistjarna og var líkskoðaranum vottuð virðing þeirra sem höfðu tekið þátt í skoðunarferðalagi hans um hugarlendur Plútós.
Svipaða slúðursögu heyrði ég um Fóbos og Deimos á FFH síðum. Ég ákvað að athuga hvort að til væri nokkuð í þeirri slúðursögu og horfa einfaldlega upp í himininn árið 2001 í leit að a.m.k. Fóbosi, og þá komst ég að því mér til mikillrar ánægju að ekki voru einungis bæði tunglin sjáanleg, eitthvað dularfullt þriðja fyrirbæri var sjáanlegt á milli Mars, Fóbosar og Deimosar sem enginn virtist ræða nokkuð um. Ég hafði sem sagt séð tunglin frá Jörðu niðri, og notið þess og reynt að uppfræða bandaríska heimasíðu um að tunglin væru sjáanleg og hvurgi horfin öllum til mikills léttis.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Poxxx 18/9/06 10:56

Takk fyrir það.

Poxxx
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Glundroði 25/9/06 14:55

Fyrir hönd Áhugamannafélags um varðveislu lítt eða ónotaðra spjallþráða hefur verið ákveðiðp að stofna sjóð sem hefur það að markmiði að veita stofnendum umræddra spjallþráða verðuga áfallahjálp og styðja þá til þess að ná fótfestu í mannlegu samfélagi að nýju. Undirritaður óskar hér með eftir styrktarframlögum sem tilkynnt skulu hér á spjallþræðinum. Þetta tilkynnist yður hér með, Glundroði.

Eggjar eg deyfi minna andskota, • bíta-t þeim vopn né velir.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Úlfamaðurinn 26/9/06 12:32

Glundroði; Á Íslandi er talið stórhættulegt að menn geri tilraunir til að tala við sjálfa sig. En mér finnst mjög gaman að verða vitni af því að horfa upp á þig í eintali við sjálfann þig. Auðvitað skulum við varðveita spjallþræði sem enginn annar hefur áhuga á. Það er allt í lagi. En um leið og þeir fara út fyrir viss mörk þarf sá sem semur þá að geta eytt þeim ef þess er kostur.

Úlfamaðurinn
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Dýragarðsvörðurinn 23/10/06 00:19
LOKAÐ
» Gestapó   » Almennt spjall   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: