Kæru vinir,
Í dag samdi ég ansi skjumtulegt langlokuinnlegg í léttlokuformi á málstofu minni þar sem ég er að velta fyrir mér hvort að við kynnum að vera ímyndaðir persónuleikar brjálaðs vísindamanns sem hét Paul Bennewitz og var til í raun og veru. Búið er að gefa út ævisögu um manninn og heitir hún Project Beta og fæst hjá Amazon. Sagan er stútfull af algjöru kjaftæði og bulli en engu að síður skemmtileg aflestrar fyrir þá sem eru ekkert að fara að lesa hana til að taka innihald hennar of alvarlega.
Þú verður bara að reyna að útvega þér mynd og fara að rita Félagsrit hér þú er nú þegar búinn að gefa út hér í þráðum heila bók en sumir ná ekki samhenginu því menn lesa bókina í öfugri röð. Farðu í niðurskipan og veldu mynd úr myndasafni, eftir það verður leikurinn auðveldari.
Jæja Offari, er ég ekki sætur og myndarlegur sem Kínverji?
Hakuchi! (veit varla hvað það þýðir)
en haf engar áhyggjur, því að mig langar til að senda mynd til Baggalútarins síðar meir af einhverju sem ég hef teiknað sjálfur eða ljósritað upp úr bók. Er það leyfilegt? Sú mynd verður mjög skemmtileg.
Til hamingju með andlitið.Ljómar upp Þú ættir að prófa að senda Enter myndina og athuga hvort hann geti límt hana yfir þennann kínverja. enter@baggalutur.is
Í gömlum fælum KGB eru miklu betri mybndir af yður?