Ég á enn eftir að sætta mig við þau örlög að hafa fallið úr þeim sessi að hafa verið heiðursgestur á Gestapó fyrir sumarfrí niður í það að vera nú bara óbreyttur. Stolt mitt er sært.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ég hef náð þeim stalli að vera Friðargæsluliði, heiðursgestur og sagnaþulur.
Hvað viltu mikla breytingu vinur, 33 tommur 38 tommur eða 44 tommur, hér er allt mögulegt.
Friðargæsluliði. Óbreyttur gestur og sagnaþulur.... mótsagnakennt, en mér líkar vel við það...
Þakka þér Offari, þú ert sannur vinur í raun. 38 tommur væri fínt.
Ég sé að Ívar hefur verið mjög afkastamikill, kominn með hátt í 1200 innlegg á 11 dögum.
Mig vantar enn 949 innlegg til að komast aftur í heiðursgestaflokkinn, en ég get þó huggað mig við að halda biskupsembættinu og tveimur ráðuneytum.
Hmm.. já ég er fastagestur og skriffinnur.
Ég vil fá heiðurinn minn aftur.
Er óbreytti gesturinn kannski ekki orðinn umbreyttur ennþá og því óbreyttur?
Ég skil ekkert í því að menn skuli vera verðlaunaðir fyrir innleggjafjölda en ekki lengd innleggs eða efnistök og stíl. Menn með 1000 fúlegg eru hér mikilsmetnir en aðrir eru ofsóttir fyrir að vera hugsjónamenn. Brestur í óstöðvandi grát
Vér duttum fyrir stuttu niður úr heiðursgesti í nýgrœðing. Vér erum nú þegar vel rúmlega hálfnaðir á leið vorri í fastagestsstólinn, en ef tíðni innleggja vorra verður svipuð þeirri er var fyrir lokun gæti orðið bið á heiðurssæti.
Ég skil ekkert í því að menn skuli vera verðlaunaðir fyrir innleggjafjölda en ekki lengd innleggs eða efnistök og stíl. Menn með 1000 fúlegg eru hér mikilsmetnir en aðrir eru ofsóttir fyrir að vera hugsjónamenn. Brestur í óstöðvandi grát
Hér áður tók ég saman svona til gamans smá tölfræði yfir innleggja fjölda. Tilurð þess var að mjög nýir gestir klifruðu afar hratt upp alla skala Minnist baunana forðum daga
Var eftirtektarvert þar hve mörg innlegg að meðaltali á dag einstaka gestir gátu komið komið með.
Ég ætti kanski að grafa upp þessar minjar svona til gamans. Skjalasafnið gæti hugsanlega flokkað, skráð og merkt þessi gögn.