Ljómar upp Hversvegna ertu með dulargerfi? Ertu njósnari?
Ég er embættismaður og í krafti þess er ég í dulargerfi, já!
Mmmm...embætti Gefur frá sér vellíðunarstunu og sleppir einum hljóðlausum
Fyrri listinn vekur óhug. Nema reyndar Samúel. Á hann nokkuð heima í svona félagsskap þó hann viti ekki betur en að kjósa framsókn?
Er ekki konan hans í framboði fyrir Framsókn og hann því nauðbeygður til að fylgja með?
Mér líst annars betur á seinni listann. Ég þekki ekkert af þessu fólki persónulega (ekki heldur á fyrri listanum reyndar) en það sem ég hef séð og lesið eftir það finnst mér áhugavert og oft skemmtilegt.
Þetta þykja mér slæmir valkostir. Svona svipað og í forsetakosningum hér í sveit. Það er spurning hvor kosturinn sé minna slæmur. andvarpar
Það mætti búa til knattspyrnulið úr fyrri hópnum og handboltalið úr þeim seinni - eða hvað?
Þetta eru allt saman meira eða minna drulluhalar og leiðindaplebbar.
Nema Hallgrímur og Gnarr, á góðum degi.
Já, það eru útsendarar víða.
Áfram Vigdís!
Ég er með skítafýlusprengju í vasanum sko.
Mig langar að setja inn hið fyrsta sem kemur upp hugann varðandi hvern fyrir sig, þið megið líka gera hið sama:
Snorri í Betel "Það er eldurinn sem er í æðum ykkar..." -Úr stólræðu
Gunnar í Krossinum "Okkar heili er innsiglaður..." -Úr stólræðu
Davíð Oddson "Hver segir það...?" - Margnotaður skólastjórafrasi
Samúel Örn Erlingsson Skítaglottið
Geir Ólafsson - Ekki meir Geir (Fræg fyrirsögn á hljómplötugagnrýni)
Gillzenegger - "Sprengdi ég nokkuð í þig í gær..." (Úr Kallinum með Baggalút)
Gísli Marteinn - Draga-að-sér-jakkafaldskækurinn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson - Jón Þorláksson
Björn Bjarnason - Dauðadrykkjumannaglottið
Sigurður Kári Kristjánsson - Ekkert kemur upp í hugann, sem er prenthæft
Pétur H. Blöndal - Hæðnisglottið og tafsið og ótrúlegir danshæfileikar
Valgerður Sverrisdóttir - Kindasvipurinn (sem Dr. Gunni benti réttilega í bloggi sínu)
Sturla Böðvarsson - Ég held að hann andvarpi allt of mikið yfir daginn
Eiríkur Jónsson - "Hva? Hver segir það...?" (Úr varnarræðu í Bubbamálinu)
Mikael Torfason -
Æi, komiði með eitthvað um hina...
Þráinn Bertelsson
Guðmundur Steingrímsson
Davíd Þór Jónsson
Jón Gnarr
Hallgrímur Helgason
Andri Snær Magnason
Steingrímur J. Sigfússon
Ágúst Ólafur Ágústsson
Ómar Ragnarsson
Vigdís Finnbogadóttir
Þetta er nú líka allt of langt innlegg
það þarf ekki að vera með neinar hártoganir hér.
Fyrri hópurinn= Hrúga af drullusokkum og hálfvitum.
Seinni hópurinn= Sæmilegasta fólk eftir því sem ég best veit.
Í fyrri hópnum hefðu getað verið fleiri framsóknarmenn, en þeir eru kannski bara ekki til?
Tinni hóf skemmtilega pælingu
Snorri í Betel -> Bóka- og geisladiskabrennur -> hættulegur!
Gunnar í Krossinum -> Múgsefjun og peningaplokk -> hættulegur!
Davíð Oddson -> Valdagráðugur mannfyrirlitningarplebbi -> hættulegur!
Samúel Örn Erlingsson -> Hávaðasamur og sauðheimskur -> virðist vera meinlaus en er líklega hættulegur!
Geir Ólafsson -> Hávaðasamur, sauðheimskur og uppáþrengjandi -> Stórhættulegur!
Gillzenegger -> Hnakki og besserwisser -> Lífshættulegur!
Gísli Marteinn -> Fermingarfasisti og sjálfsánægjuplebbi -> hættulegur!
Hannes Hólmsteinn Gissurarson -> Frjálshyggja 101 og mannfyrirlitning-> hættulegur!
Björn Bjarnason -> Strengjabrúða Davíðs og aðdáandi Bruce Willis -> Lífshættulegur!
Sigurður Kári Kristjánsson -> Keyrði fullur -> Lífshættulegur!
Pétur H. Blöndal -> Vitlaus! -> Stórhættulegur!
Valgerður Sverrisdóttir -> Stóriðjusinni -> Stórhættuleg!
Sturla Böðvarsson -> Vitlaus en valdagráðugur -> Lífshættulegur!
Eiríkur Jónsson -> Skrifar það sem honum sýnist, þegar honum sýnist -> Stórhættulegur!
Mikael Torfason -> Lærlingur Eiríks Jónssonar, gerir eins og Eiríkur Jónsson -> Stórhættulegur!
eða
Þráinn Bertelsson -> Svolítill nöldrari -> meikar oftast sens
Guðmundur Steingrímsson -> grallari og svolítill bullari -> Á góða punkta en verður að passa sig
Davíð Þór Jónsson -> kjarnyrtur, hnittinn og rökfastur -> Klettur!
Jón Gnarr -> Meinfyndinn og afskaplega hæðinn og beittur -> Þrumufleygur!
Hallgrímur Helgason -> Kemur við mjög viðkvæma bletti á þeim sem hann langar til að pota í -> Nauðsynlegur!
Andri Snær Magnason -> Feykigóður rithöfundur og kann að skrifa þannig að það er ekki hægt að véfengja það -> Nauðsynlegur!
Steingrímur J. Sigfússon -> Hávaðasamur nöldrari með góðar skoðanir -> Þarf að dempa hann en hann er nauðsynlegur!
Ágúst Ólafur Ágústsson -> Reynslulítill pjakkur sem meinar vel -> Nauðsynlegur í ungliðunina.
Ómar Ragnarsson -> Segir hlutina eins og þeir eru -> Snillingur, nauðsynlegur snillingur!
Vigdís Finnbogadóttir -> Kletturinn og styrka stoðin -> Lífsnauðsynleg!
Mikið voðalega sökkva sumir djúpt í frægðaröfund sinni. Hafiði verki með þessu?