Sest við tölvu, set í gang.
Sé að hún búttar sig upp.
Sest við tölvu, set í gang.
Sé að hún búttar sig upp.
Kýrin etur kál og þang
og klórar sér um hupp?
Sest við tölvu, set í gang.
Sé að hún búttar sig upp.
Beiti henni síðan á þara og þang
svo þyngist um læri og hupp.
Vó, þessi svör komu á sömu mínútunum, og hafa nákvæmlega sömu(sjaldgæfu) rímorð. Merkilegt.
Sest við tölvu, set í gang.
Sé að hún búttar sig upp.
Á explorer kveiki
kanske fer í leiki
vinnan gleður varla í rupp
Sest við tölvu, set í gang.
Sé að hún búttar sig upp.
Alnets síðan iðka sprang
ýtarnir glaðna við skupp
(skupp = háð, spott)