Að hendast um á hestbaki er gaman
hossast um með mýflugur í framan.
Í pokann sinn svo seint á kvöldin skríða
skemmtilegra væri þó að
sjúddirallirei
sjúddirallira
skemmtilegra væri þó að....lesa Andrésblað?
Gekk ég kvöld eitt niður Grettisgötu
gat að líta konu með mjólk í fötu.
Hún líktist alveg agalegri brussu
því hún stóð og var að bor'í sína
sjúddirallirei
sjúddirallira
hún stóð og var að bor'í sína nös.
Manga veittist munaður
þó maðurinn sé rotta
hann sagði en sá unaður
er hún fór að ... tala um veðrið
Mér fannst vera viðeigandi að rifja upp gamla vísu sem ég samdi í hallæri einhverntíman fyrir löngu síðan. Fannst hún passa hér inn.
Alltaf má ég aldrei neitt,
nema bara bíða.
Konan kveðst vera þreytt,
þegar ég vil... spila rommí !?!
-
Kaldur var í kvennaleit
konu sá í svuntu
hún var glöð og heldur feit
með heljarstóra ... saumavél