Sagan gerist í litlum polli í Suður Jótlandi.
Þetta er þroskasaga lítils frosks og barátta hans við ægilega vörtu sem er föst á nefi hans.
Aðalsöguhetjan er Venni froskur.
Aðrar söguhetjur eru t.d. ýmis skordýr, mýs, rottur, fuglar og önnur smákvikindi, sem höfundar ráða sjálfir.
-----------------------------------
Það var eitt sinn að Venni litli var að stökkva á milli steina að hann sá bregða fyrir spegilmynd af sjálfum sér í skítabrúnni tjörninni, það sem hann sá vakti með honum viðbjóð og óhugnað. Það hafði birst risavaxin varta í andliti hans og það á mitt nefið.
Venni stökk í laugina til þess að athuga hvort vartan myndi skolast af. EN HÚN SKOLAÐIST EKKI AF[/img]
Hann teygði tunguna upp á nef og reyndi að sjúga vörtuna af, ekki gekk það heldur. Hann var við það kominn að örvænta þegar lítil og loðin
mús kom aðvífandi og fór strax að hlæja að greyinu honum Venna. Þá missti venni stjórn á skapi sínu og[/s]
slengdi tungunni beint framan í músina sem brást við því með að glefsa í hana leiftursnöggt. Froskurinn æpti á músina og gerði sig tilbúinn að kasta í hana steinvölu en þá kom
Magga mús og öskraði á Venna: "Venni, ekki ráðast á minni máttar, eigum við ekki frekar að reyna að gera eitthvað í þessari ógeðslegu vörtu sem þú er með?" sagði hún og stökk á Venna, beit vörtuna af og lifðu þau öll hamingjusöm til æfiloka...THE END (það var enginn broddur í þessari sögu hvort sem er :)