Í ljósi undanfarinna þráða spyr ég:
Nærföt?
Hvaðan koma þau?
Hver átti hugmyndina?
Hver er tilagangurinn?
Er siðblint að ganga ekki í nærfötum?
Hver er ársframleiðsla í heiminum á nærfötum?
Hversu margar gerðir nærfata eru til?
O.s.frv. o.s.frv., listinn er engan vegin tæmandi.
Nærföt hafa fylgt okkur Íslendingum í gegnum söguna og næstum jafn algengt og harðfiskur... Síðar nærbrækur (föðurland) hefur haldið mönnum á lífi í gegnum frost og funa, sérstaklega ullarnærbrækur... aðeins eitt yljar mönnum meir en ullarnærbrækurnar, en það er brjóstbirtan... það aftur á móti gefur villandi hlýleika og er meira deyfandi en hlýjandi... því er mitt fyrsta innlegg á þennan þráð:
Ullarnærbrækur eru góðar...
Skellir nærfötunum sínum í þvottavélina
Nærföt beggja kynja er sú skelfing sem maður er neyddur til að klæðast á blessuðum sjúkrahúsunum okkar.
ja sei sei
Hvernig líta nærföt fyrir tvíkynja fólk út? Verða einhvern tíman framleidd nærföt fyrir hýenur?
kær kveðja,