(Í orðastað Mark Twain)
Heyriði félagar fínu
fréttir af andláti mínu
(og lengdin lóks)
var lítið hóks,
ýktu þeir -pons bara pínu-
Isak var alls ekki dáinn
allt það var skot út í bláinn
en lífið hann kyssti
um leið hann missti
langbesta vin sinn hann Þráinn.
Kostningaloforðin klingja
Kátir menn lofa í hring
Helvítin jafnvel þeir hringja
Hei kjóstu mig inná þing
Í kosningum færir mörg ókind og ugla
á altari heimskunnar fórn.
Ef þetta er tilfellið þeir er' að rugla
þingi og sveitarstjórn.
Það var fjúk úti í Reykjavík er ég leit til veðurs í morgun, datt þá
í hug þessi vorlega sveitarómantík:
Þó lömbin á túnunum losi nú saur,
lifni við móinn svo gróinn,
lóan hún rembist sem rjúpa við staur,
- reynir að kveða burt snjóinn.
sósíalisminn sýnist mér
sæðishrútnum líkur
sem að ekkert eista ber
- ær og bónda svíkur
Tussulegur tussu hlaut,
tussu út á skarni.
Tussu vel í tussu skaut
tussu ljótu barni.