— GESTAPÓ —
Af erlendu vinnuafli og innflytjendum
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts
GESTUR
 • LOKAР• 
Úlfamaðurinn 28/5/06 23:25

Úlfamaðurinn ; gagnrýni á ruglið á þeim sem tala um erlent vinnuafl eða ólöglega innflytjendur og vilja þau burt frá Íslandi

Úlfamaðurinn skilur ekki nasistann þótt að hann viti engu að síður að nasistar hafi haft gaman af sínu kyni en samt ofsótt kynið misskunnarlaust, úlfamanninum til mikillrar gremju og fjölskyldu hans, úlfum Þýskalands, Ítalíu og víðar. Úlfamaðurinn telur að hugtakið ´ólöglegur innflytjandi´og hugtakið ´erlent vinnuafl´séu úrelt hugtök sem hafi enga merkingu lengur. Úlfamaðurinn vill spyrja nasistann hvernig hann á að geta tekið sjálfann sig fram yfir ´erlent´vinnuafl þegar svo virðist sem að a.m.k. 90% íslensku þjóðarinnar séu komin af þrem varúlfum, Agli Skallagrímssyni, Skallagrími og Kvöldúlfi sem allir röktu ættir sínar til úlfa? Úlfamaðirnn telur að nasistinn sé ekki andlega heilbrigður og segir rétt hjá nasistanum að hafa stórt spurningamerki til að lýsa karakter sínum.
Þá vill úlfamaðurinn taka undir þá sögu sem gengur um á Vesturlöndum að Adolf Hitler hafi beðist afsökunar sjálfur á helför sinni gegn gyðingum og öðrum trúflokkum eða þjóðum, og viðurkennir þar af leiðandi sjálfur glæp sem ég tel að skynsamlegast sé fyrir fólk einfaldlega að gleyma. Ef við gleymum helförinni endurtekur hún sig ekki aftur. Þá finnst úlfamanninum að það vanti stórlega ´himnaför´sem annan valmöguleika gagnvart helför. Spurning sé hver eigi að hefja fyrstur manna himnaförina sem sagnfræðilegan atburð, og nú sé einmitt kjörinn tími til þess. Úlfamaðurinn skilur ekki sjúklega þörf manna á að fara illa með þá sem eru kallaðir á afar óréttlátann og ósanngjarnan hátt ´ólöglegir innflytjendur´, jafnvel á www.rense.com heimasíðunni þar sem þeim er líkt við geimverur sem vilja gera árás á Bandaríkin. Úlfamaðurinn telur að hætta eigi að kalla fólk ólöglega innflytjendur og ´erlent vinnuafl´ þar sem Jörðin sé lifandi vera sem við erum öll hluti af.
Úlfamanninum finnst alveg sárgrætilegt hversu illa og hart er tekið á málefnum innflytjenda í ríkjum eins og Bandaríkjunum, Íslandi og Frakklandi.
Úlfamaðurinn veltir fyrir sér hvað menn eins og Jacques Chirac, Halldór Ásgrímsson, Geir H. Harrde, Össur Skarphéðinsson, Bush familían og fleiri myndu gera ef þeir upplifðu þann ófögnuð að vera kallaðir ólöglegir innflytjendur. Úlfamaðurinn man ekki eftir því að hafa kallað einn einasta gest frá öðru landi sem dvelur á Íslandi í augnablikinu ´ólöglegan innflytjenda´eða ´erlent vinnuafl´.
Úlfamaðurinn lýsir yfir að sjálfur hafi hann marg oft verið lýstur gersamlega ómögulegur sem vinnuafl og aldrei verið kallaður erlendur þegar hann hafi verið í Kaupmannahöfn, heldur bróðir þegar hann ferðaðist til Kanada og mætti þar ókunnugum á stjá. Úlfamaðurinn er engu að síður sammála skoðunum þess efnis að Alcoa og skyld fyrirtæki fái ekki að starfa hér. Þá er úlfamaðurinn svo hlynntur þeirri afstöðu að Jörðin sé meðvituð reikistjarna að honum langaði lengi til þess að fá Landhelgisgæslu Íslands til þess að leggja niður íslenska fánann þegar að þyrluhönnun kemur, en þorði það ekki vegna virðingar og stöðu Landhelgisgæslunnar, og einnig vegna þess að hann var ekki viss um hvernig Gæslan myndi bregðast við.
Úlfamaðurinn ráðleggur nasistanum að skreppa til Suðurskautslandsins á næstu misserum og gá hvort að hann finni hurð eða dyr í einhverju fjalli, banka kurteisislega á, gleyma því ekki að tala þýsku og athuga hvort að þar búi einhver sem sé ´sér´(þ.e. nasistanum) sammála. Úlfamaðurinn ráðleggur nasistanum að fljúgan ögn sunnarlega eigi hann flugvél og þá sérstaklega yfir það svæði sem bannað er í dag að fljúga yfir og Admiral Richard Byrd flaug yfir sinni flugvél á sínum tíma. Hver veit, kannski afhendir einn af íbúum hinnar innri Jarðar nasistanum bein Adolfs Hitlers þess til sönnunar að ´Der Fuhrer´hafi ekki framið sjálfsmorð sem margir hafa reynt að halda fram síðan 1947. Zig nicth heil zur der Islaandisch Wulfmann.

kær kveðja,

Úlfamaðurinn (minnist þess þegar Bjarni Goebbels Kjartansson í Laugardalslauginni var næstum því búinn að innvígja hann í nasismann áður en honum snerist hugur síðar meir eftir því sem hann fór að þroskast og Bjarni reyndar með honum)

matrixs@mi.is

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 28/5/06 23:35

Ég er að velta því fyrir mér hvort klárist fyr, pillurnar eða blekið.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 28/5/06 23:40

Láttu ekki svona við hann þetta er þörf umræða hjá Úlfmanninum. Er útlendingahatur á Íslandi að verða að vandamáli?

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 28/5/06 23:51

Nei, en það verður það þegar innflytjendur í Fjarðarbyggð krefjast aðskilnaðar og sjálfstæðs ríkis þar sem þeir séu orðnir í meirihluta. Svipað og gerðist í Kosovo.

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 29/5/06 00:46

Eigi er hætta á því þar eð eigi hafa þeir búið þar í margar aldir og geta því eigi vísað til hefðar. Hugsanlega gætu þó orðið minniháttar vandamál um eða eftir 30. öldina.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
GESTUR
 • LOKAР• 
Úlfamaðurinn 29/5/06 13:00

Blekið hjá Úlfamanninum kláraðist fyrir nokkrum mánuðum síðan. Þá var Úlfamaðurinn að velta fyrir sér hvort hann gæti ekki fengið blek úr Kolkrabbanum enda Kolkrabbinn með 47 % eða minna fylgi í borgarstjórnarkosningunum. Úlfamaðurinn er mjög vanur gagnrýni á umræðuna um erlent vinnuafl, en notar engar ´pillur´. Úlfamaðurinn er með alltof stórann kjaft til þess að geta ráðið við pillurnar. Stundum er kjafturinn á úlfamanninum svo stór að hann ræður ekki við hann og þá þarf hann á aðstoð annara að halda til þess að hemja sig, ellígar vera skotinn með silfurkúlu á staðnum, eða jafnvel verr, uppstoppaður. Úlfamaðurinn hefur sjálfur t.d. lent oft í því að vera ´útlendingur í eigin landi´eins og það er kallað, og veit að þó að menn eigi að hætta að kalla hvorn annan ólöglegan innflytjanda eða erlent vinnafl þá er ekki þar með sagt að öllum menningarlegum gildum þurfi að fórna. Úlfamanninum þykir vænt um að fjarlægðar hafi verið greinarnar um Akureyrina EA 110, en nú eru allar staðreyndir málsins að koma í ljós og eru birtar í Morgunblaðinu, DV og Fréttablaðinu.
Úlfamanninum finnst Baggalúturinn skemmtilegasta heimasíða sem hann hefur lengi heimsótt. Hann telur að flestir þeirra sem skrái sig á síðuna sem ýmisst nasistar eða jafnvel mafíósar, séu í raun alls ekkert að taka viðurnefni sín alvarlega, og nefnir eitt atriði sem gerir dordingulinn að háþróaðri vitsmunaveru en hann sjálfur er - og það er sú staðreynd að dordingullinn hefur 360 gráðu sjón, enda af köngulóarkyni.
Og það eru nefnilega ekki margir sem skrifa á vefsíður hér á landi sem hafa svo mjög góða sjón eins og Dordingullinn hefur. Úlfamaðurinn vill þó vara Dordingullinn við kóngulóarvespunni því hún getur gengið af dordinglum dauðum með því að verpa í hann, og þar geti Úlfamaðurinn hvurgi komið til bjargar vegna hræðslu sinnar gagnvart vespum, já, þess vegna m.a. eiga dordinglar skemmri ævi heldur en úlfamenn, og þurfa að passa sig mun betur. Þeir gætu t.d. lent í því að þegar eggin í sárinu sem verpt var í af kóngulóarvespunni klekjast út þá fara ungarnir að nærast á holdinu.

kær kveðja,

Úlfamaðurinn,

matrixs@mi.is

GESTUR
 • LOKAР• 
Úlfamaðurinn 29/5/06 13:05

Hvað Kolkrabban varðar,

Veiðum við hann bara og notum síðan blekið í honum, fjöldaframleiðum og setjum á markað. Svo étum við bara Kolkrabbann og þá geta aðrir Kolkrabbar ekki dulbúið sig lengur fyrir okkur, nema í hafdjúpunum, og þá einungis með aðstoð bleksins, þá förum við bara niður í hafdjúpin, og í staðinn fyrir að veiða blessuð greyin, náum blekinu þegar við höfum hrætt þá til að framleiða það,
Helvítið á D - listanum og R - listasamstarfinu. Að þeir skuli ekki hafa fattað þetta fyrr.

kær kveðja,

matrixs@mi.is

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Úlfamaðurinn 29/5/06 15:57

Spurning til nasistans; eigum við að leysa vandann um umræðuna um ólöglega innflytjendur með því að fá allt fólk sem annað hvort flytur til útlanda, fer til útlanda, er frá öðru landi og er að fara heim aftur, skráð sem útflytjendur? Hvað fyndist nasistanum um að þeir sem ferðuðust frá Íslandi til útlanda yrðu settir á skrá sem útflytjendur og þar með þyrftu ekki lengur að skrá sig aftur inn sem innflytjendur ef þeir fara aftur til Íslands í framtíðinni?

kær kveðja,

matrixs@mi.is

LOKAÐ
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: