Jæja vinir mínir,
Nú verður Riddarinn himinlifandi. Í fyrsta sinn í gjurvallri mannkynssögunni munu riddari og úlfamaður mætast á förnum vegi og hvorum verða meint af, enda höfum við úlfamenn lært ýmislegt í gegnum tíðina af mannfólkinu. T.d. var ég að frétta af því núna á dögunum að úlfamennirnir í Wisconsin væru farnir að verða siðmenntaðri en áður og þyrðu meira að láta sjá sig, enda er skilningur vísindamanna á varúlfum orðinn mun meiri í dag en áður hefur verið. Nú veltir úlfamaðurinn fyrir sér hvort hann eigi ekki að fara að láta búa til skinn úr hárinu á sér án þess að láta lóga sér fyrst eins og hverjum öðrum hundi og setja svo bara skinnið á markað, hvur veit,
kær kveðja,
Úlfamaðurinn,
Ánægður með að geta skráð sig á Baggalútinn og skilur ekki af hverju sumum Baggalútingum leiðist það sem er talað um hér.
OG mun hvorugum verða meint af, hér var víst prentvilla. ´Hvorum´á að vera hvorugum, athugum nú hvernig riddarinn bregst við
Mun hann hreppa stúlkuna, eða úlfamaðurinn?
kær kveðja,
Úlfamaðurinn,