Svo er hægt að lama dýr
með klaufalegum vísum.
Grilla saman mjólkurkýr
og éta þær með hnýsum.
Öfug öllum öðrum ögn
þögul þulu þuldi .
Öfug öllum öðrum ögn
þögul þulu þuldi.
Eftir alltof langa þögn
inn á skjáinn buldi
tuttugasta síðasta andvarp hans
á tuttugasta efsta þráðinn
tuttugasta síðasta andvarp hans
á tuttugasta efsta þráðinn
Sleiktur og strokinn í meyjafans
sko hann kann þetta snáðinn.
Menntafólk þambar orkudrykk
ósofið geispandi veinar.
Menntafólk þambar orkudrykk
ósofið geispandi veinar.
Kann ekki neitt um kartöfluþrykk
né að gera frönskurnar beinar.
Vorið kom og vorið fór
aldrei kemur sumar.
Vorið kom og vorið fór
aldrei kemur sumar.
Ef lömbin verða ekki stór
éta skaltu humar.
Sumar vetur vor og haust
allur er sami grauturinn
Sumar vetur vor og haust
allur er sami grauturinn
„Eins og gerpi grautarhaust
allt fram streymir“ - skaut hvur inn?
Þá er að gera fyrripart
og vona að einhver botni.
Þá er að gera fyrripart
og vona að einhver botni
Rosalega er hægt að ríma margt
með vini mínum Drottni
Frammsókninn fékk flengingu
Féllu út ú haugum
Frammsókninn fékk flengingu
Féllu út ú haugum
Eiginlega hengingu
og fara nú á taugum.
Duttu út af kortinu
á fjöldamörgum stöðum
Duttu út af kortinu
á fjöldamörgum stöðum
í kosningapots sportinu
þeir urðu fyrir sköðum
Köttur feitur kúrir hér
Kafloðinn á skrokkinn