Your file has expired.
Þetta er það sem kom þegar ég ætlaði að ná í lagið. Þú þarft sennilega að koma með þetta aftur... Eða er þetta bara mín tölva?
Hérna er þetta aftur þá. Skyclad - Penny Dreadful Svo er bara málið að láta þetta ganga hraða svo þetta komi ekki fyrir.
Skyclad - Penny Dreadful
Þetta er bara eðallag, hreinlega. Minnti mig einhvern veginn á Whiskey in a jar með Metallica þó að þetta sé auðvitað töluvert öðruvísi. Skemmtileg fiðlan í laginu og það er eitthvað nýtt fyrir mér þegar það er fiðla inní rokklagi. Gítarriffið er helvíti gott í laginu, trommurnar eru alveg örugglega fínar en ég er engin sérfræðingur á því sviði, hljómuðu allavega vel bara. Söngurinn er ágætur, hentar laginu vel.
Niðurstaða: Þetta er skemmtilegt og gott lag og það fer beint inná iPodinn hjá mér. Kann ekki við það að gefa laginu einkunn en hún er há.
Þá er það eitt fyrsta lag Nirvana (allaveganna sem var tekið upp og náði einhverjum smá vinsældum): Love Buzz - Nirvana
Nú er enginn búinn að gagnrýna lagið, hekkurinn úreltur og ég orðin pirruð!
Ohhh, þá kem ég með annað lag, nú íslenskt.
Þá er það eitt fyrsta lag Nirvana (allaveganna sem var tekið upp og náði einhverjum smá vinsældum): Love Buzz - Nirvana
Kannski fyrsta svona hit sem þeir komu með en þetta er bara ábreiða í þeirra flutningi.
Mikið rétt, mikið rétt.. En annras, á ekkert að fara að gagnrýna? Er þessi leikur kannski alveg endanlega að deyja? Vona allavega ekki...
Það er ánægjulegt að sjá að þessi leikur hefur verið endurvakinn - en því miður lenti ég í vandræðum með að spila lagið. Það gæti þó verið að þetta sé eingöngu Línuuxanum mínum að kenna. Vill einhver annar reyna að sækja þetta lag og spila það?
Linkurinn virðist ekki virka fyrir mig heldur Hakuchi. Ég ætla að gera tilraun til að endurvekja leikinn á fyrstu síðunni, þar sem einhver sér hann oftar en á nokkurra mánaða fresti.
Dularfullt. Ég hlaðaði laginu upp aftur og það virkar ekki. Þetta Yousendit virðist þá vera eitthvað að klikka. Ætli það séu til aðrar vænlegar upphlöðunarsíður?