Hellir í sig 13. staupinu, sigrar og montar sig
Hellir í sig 13. staupinu, sigrar og montar sig
Þetta var betra Fyllist aðdáunar á Útvarpsstjóra
Var þetta ekki keppni milli okkar Hakuchi?
Var þetta ekki keppni milli okkar Hakuchi?
jú en það er nú stæll á þessu hjá Trölla.
Já já, hann má eiga það blessaður.
Eigum við ekki að tvöfalda pottinn? Dregur inn 100 l viskítunnu Ég á góðan séns að vinna ef Skabbi lætur ekki sjá sig.
Eigi höfum vjer Skabba sjeð í þessari viku og hyggjum vjer að hann muni í afvötnun vera Notar tækifærið og brýst inn í ÁTVB til að fram geti farið alvöru drykkjukeppni.
Fyrr frýs nú í helvíti, hann hefur frekar læst sig úti og man hvorki aðgangs- né lykilorðið á Gestapó. Er ég þá sigurvegarinn?
Ég er gott sem búinn með grunnskóla og get núna bara tjillað í hátt í fjóra mánuði! ÚJÉ!
Dúddi mælti: Ég er gott sem búinn með grunnskóla og get núna bara „tjillað“ í hátt í fjóra mánuði! ÚJÉ!
Skv. mínum útreikningum þá ertu ekki einu sinni hálfnaður/hálfnuð. Næst er það mennta- eða fjölbrautarskóli, ca. 4 ár, svo háskóli B.A. + Masterspróf ca. 5 ár, svo doktarspróf í önnur 4 ár og 1 ár í kennslufræðinni. Þannig að þú ert búinn með 10 vetur af 24 (ef maður telur forskóla ekki með). Þú ert rétt búinn með 40 % og átt svo sannarlega nóg eftir. Þegar þú verður búinn hefur þú eytt a.m.k. 1152 klst. í prófum (próf tvisvar á ári, þrír tímar hvert í a.m.k. 8 fögum (2x3x8x24=1152)) eða samtals í 48 sólarhringa (ca. 7 vikur). Það er helvíti magnað. Á sama tíma (24 vetur, 8 mánuði hver með 20 kennsludögum með 8 klst dag hvern) hefur þú verið a.m.k. 30720 (24x8x20x8) klst. í skólanum. Það eru 1.843.200 mínútur eða sem svarar til 110.592.000 sekúndur. Verður þeim öllum vel varið?
Já og til að gleðja þig ennþá meira þá er þetta sá valkostur sem miðast við að fara í skóla og læra. Svo er hægt að sleppa því að fara í skóla og enda í staðinn í einhverju ömurlegu illa borguðu skítastarfi, vera í því þar til maður hrekkur upp af eða kemst á örorkubætur eða ellilífeyri sem eru ótrúlegar lágar. Skemmtileg tilhugsun ekki satt!
Enda sagði ég GRUNNSKÓLA og FJÓRA MÁNUÐI, ekki ALLA MENNTUN og ÚT LÍFIÐ. Og já, takk fyrrir ekkert kúkur!
Annars er nú svo gaman að læra, alveg yndislegt...
Ég var að fá fína einkunn út úr prófi sem 15 af 35 féllu í. Ætli maður geti ekki montað sig pínulítið af því.
Sperrir sig og spígsporar um, spjátrungslega
Á svona stundum er leyfilegt að monta sig.
Gott hjá þér!
Úh úh! Ég má líka monta mig!
Ég var að taka skriflegt próf í köfun í gær og ég fékk bara 2 villur af 50 spurningum!
Það myndi gera svo mikið sem 9,6 á íslenskan mælikvarða... og getiði hvað.. ég var hæðst í bekknum!
Og ég er samt sem áður eina manneskjan á námskeiðinu sem tala ekki norsku... og svo ég taki það fram þá er námskeiðið kennt á norsku!
Rekur nefið upp í loftið, rígmontin
þið getið ekkert ég er miklu betri en þið allveg sama hvað þið segið ég er 2 deilt með fjórum sinnum betri en þið allveg sama hvað þið segið nær í reiknivél
Montar sig af því að hafa tattúað orðið "Montrass" á hægri rasskinnina
Montar sig af því að geta rekið nebbann inná lútinn á vinnutíma enn á ný