Ég myndi halda að það væri mikilvægast í þessu öllu saman að velja námsbraut þar sem þú getur haldið sem flestum möguleikum opnum. Þú kemst t.a.m. ekki inn í raunvísindadeild HÍ með stúdentspróf af málabraut í vasanum.
Annars held ég að menntaskólaárin verði alltaf skemmtileg, sama hvaða skóla þú ferð í, nema þú verðir kannski einstaklega óheppinn með bekk.
Sjálf var ég í MH og var ánægð þar, fínt félagslíf, alls konar fjölbreyttir valkúrsar og mikið af skemmtilegu fólki, sögur af borðaklíkum og artífartisma eru stórlega ýktar miðað við mína reynslu...
Ég gleymdi víst brautunum. Auðvitað eru náttúrufræði- og eðlisfræðibrautir bestar upp á það að þær veita aðgang að raungreinanámi. Ekki er skynsamlegt að velja aðrar brautir nema að viðkomandi sé algjörlega viss um að raunvísindi eigi aldrei eftir að heilla.
Annars var lýsing mín á Verzlunarskóla Íslands byggð fyrst og fremst á fordómum sem voru mér kyrfilega innrættir í þriggja ára vist minni í Menntaskólanum í Reykjavík. Ég gengst þessa dagana undir atferlismeðferð í þeirri viðleitni að reyna að losa mig við þessar kenndir, sem og margar aðrar sem voru mér innprentaðar á þessum skelfilega stað. Verst er auðvitað sú þráláta ranghugmynd að bílskúrar séu tilvaldir sem aðstöður undir íþróttaiðkun.
Annars var lýsing mín á Verzlunarskóla Íslands byggð fyrst og fremst á fordómum sem voru mér kyrfilega innrættir í þriggja ára vist minni í Menntaskólanum í Reykjavík. Ég gengst þessa dagana undir atferlismeðferð í þeirri viðleinti að reyna að losa mig við þessar kenndir, sem og margar aðrar sem voru mér innprentaðar á þessum skelfilega stað.
Þú ert að misskilja þetta herfilega. Það er fyrst eftir útskrift úr framhaldsskóla sem þú átt að setja framhaldsskólafordómana á túrbó. Sjálfur gaf ég skít í eiginskólahroka og fordóma gegn öðrum skólum þegar ég var í skóla sjálfur. Nú er öldin önnur. Nú þegar skólinn skiptir öngvu máli er best að hafa slíka innihaldslausa fordóma og hafa gaman að. Skítugi mr-ingurinn þinn
Þú segir nokkuð. Hnakkastrípupabbastrákur
Það var rosalega gaman í FB á sínum tíma.
Þegar ég segi "á sínum tíma" þá meina ég eftir miðja síðustu öld....
skælir smá
Hlær að verslingnum honum Hakuchi, eins og sannur MH-ingur
Veslings grey.
Það var rosalega gaman í FB á sínum tíma.
Þegar ég segi "á sínum tíma" þá meina ég eftir miðja síðustu öld....
skælir smá
Ég ætla rétt að vona að þú sért ekki eins gömul og þetta hljómar.
Reyndar þýðir þetta að Ugla gæti þess vegna verið all niður í 16 ára gömul, ef ekki nokkrum árum yngri, ef hún hækkaði um bekk eða jafnvel bekki í grunnskóla. Bókstaflega er hún nefnilega að segja að hún var í framhaldsskóla einhvern tímann eftir miðja síðustu öld, en sé núna ekki þar lengur.
En auðvitað hefur margoft komið fram á öðrum vettvangi að Ugla er hundgömul, þannig að ég er einungis að setja þessa athugasemd fram til að gæta fyllstu vísindalegrar nákvæmni.
En auðvitað hefur margoft komið fram á öðrum vettvangi að Ugla er hundgömul, þannig að ég er einungis að setja þessa athugasemd fram til að gæta fyllstu vísindalegrar nákvæmni.
Þetta kallast að snúa hnífnum í sárinu...
bætir í meiköppið með spaða og blandar sér í annað glas
Værri skárra ef ég kallaði þig kattgamla?
Ertu ekki búinn að fara í neinar heimsóknir? Ég heimsótti MH og varð ástfangin, þangað ætla ég.
Ertu ekki búinn að fara í neinar heimsóknir? Ég heimsótti MH og varð ástfangin, þangað ætla ég.
Jú, reyndar. En ekki MH, þyrfti kannski að fara að drífa í því.
Hlær að verslingnum honum Hakuchi, eins og sannur MH-ingur
Veslings grey.
Gefur umkomulausa og illa lyktandi hippahreysikettinum ölmusu
Það verður að hjálpa þessum aumingja trjáfaðmandi tígrum, ekki geta þeir unnið heiðarlega vinnu.
Nýtir sér kauprétt og græðir smilljarða
Mér líst reyndar ágætlega á Verzló. Pabbi er núna líka á því að ég eigi að fara í þangað, ástæðan? Þeir gerðu myndband.
Laugar sendu líka frá sér myndband, það er inni á www.nfl.is.
Vertu nú ekki að afvegaleiða ungan piltinn Útvarpsstjóri. Það þjónar engum tilgangi að fara í Menntaskólann í Laugum þegar krakkar læra að synda í grunnskóla.
Vertu nú ekki að afvegaleiða ungan piltinn Útvarpsstjóri. Það þjónar engum tilgangi að fara í Menntaskólann í Laugum þegar krakkar læra að synda í grunnskóla.
en í hvaða framhaldskóla 0ðurm getur maður lært Lomber. ha já svaraðu því.