Margt er það sem miður fer
misjafnt sopið kálið.
Sauðarlegur Sjúmakker
sendist inní málið.
Spilling gengur og gerist enn
græðgin eykur prjálið
heiðarlegur Hakkinen
hæðir þýska stálið.
Myndarlegur Montoya
Mikael vill skáka,
"en dekkin þeir skekkja
þeir djöflar og blekkja"
ber hann í bætifláka