Vladimir er vesæll drengur,
vonlaus í að ríma.
Þykir ekki þykkur fengur,
þöngulhaus í síma.
Omega og andskotinn,
eru tvennt það sama,
Liggur um mitt land, rotinn,
og lýgur, mér til ama.
Handklæði ber heilalaus
helvítinu verri
Þorpari og þöngulhaus
þjófóttur sá perri
Valdi Fuckov veldur ekki
vel að yrkja, líg ég ei.
Heldur ætti hug- af rekki
hann að kyrkja sig í þey.
Á ekki annars að yrkja níðvísu um síðasta ræðumann? Ef ekki biðst ég forláts.
Valdi Fuckov veldur ekki
vel að yrkja, líg ég ei.
Heldur ætti hug- af rekki
hann að kyrkja sig í þey.
Á ekki annars að yrkja níðvísu um síðasta ræðumann? Ef ekki biðst ég forláts.
ó jú óskar mubla til hamingju með nýtt Baggalútíumet í því að komast á listann
undraverður aumingi
er hann mubli.
er handviss um að mubli á sér annað og þekktara nafn hér á gestapó.
er handviss um að mubli á sér annað og þekktara nafn hér á gestapó.
Er ég þá að rembast við að leiðrétta hjá honum til einskis... Bölvar yfir fávisku sinni
er handviss um að mubli á sér annað og þekktara nafn hér á gestapó.
Er ég þá að rembast við að leiðrétta hjá honum til einskis... Bölvar yfir fávisku sinni
mér datt jafnvel í hug að þetta væri riddarinn.
Til vinar míns
Skrumarinn með skaddað fés
skakklappast um Blútinn
vísur hans víst engin les
vanir þekkja grútinn.
glottir
Varla Heiðglyrnir... önnur hver vísa er illa kveðin...
en ég held að bandstrikin séu vísbending
Upprifinn með auman hatt,
espar gamla jálka,
Nei nei, það er súrt en satt,
saur fer mér um kjálka.
Skál karlinn minn...
Um þessa tvo montrassa á undan mér.
Aumir ræflar eru þetta þarna.
Þikjast hafa getu til að barna.
Undir þeim mun ekki nokkuð harðna.
Eitthvað minnir þar á innhald garna.
Orðaljóta Indira
ólaglega Gandhi.
Ljótust meðal lindýra,
lítil glyðrufjandi.
Skabba ekk' er hægt að hafa
húsum innandyra
Geldur, lekur grútarsafa,
göndul þarf að reyra.
Þetta er nú ekki hægt, nú næ ég í pabba.
Skrambi ljótur, sköllóttur,
Skabbi kúkalabbi.
Linast allur lífsþróttur
af lygaskap hans, pabbi.
Oft ég sé við djöful dufla
dragúldinn og skitinn Mubla.
Hættu þessu heimsku-Jarmi
haltu þínum saur í þarmi.
á handklæði um haus á þér
heldur föst mun snúra
vit þitt eflaust aðdán er
íbúum fiskabúra