Hífandi rok & hagl og slydda
held ég sé lokið sumri nú.
Vei þér ok vetrar. Ég blýant ydda,
skal vel í kok. Ég kem Jesú!
Fnæsir fákur kulda við,
flykkist hrákur munn'ans úr.
Út í hött hjá mubla... hrynjandi með því verra
Hífandi rok & hagl & slydda.
Held ég sé lokið sumri nú.
Hverfur nú þokan, két vil krydda,
og kyngja svo sprok af léttri kú.
Sumargleðin svífur létt,
og svælir freðin hjörtu.
Sumargleðin svífur létt,
og svælir freðin hjörtu.
úr mínum reður skal nú skvett veit svo sem ekki hvort beygingin er endilega rétt
í skuðbera með vörtu.
er í glasi elsku vin
og í fasi glaður
er í glasi elsku vin
og í fasi glaður
Fótabras og fimin lin
furðu lasinn maður.
Kistulokið læstist nú,
ligg og hokra dauður.
er í glasi elsku vin
og í fasi glaður
flýg með SAS í selskapinn
súperhasargraður
Kistulokið læstist nú,
ligg og hokra dauður.
Skjól í fokið. Brunnin brú.
Burtu mokast auður.
---------------------------------
Ekki gengur alltof vel.
Yrkjum, drengir, meira !
Ekki gengur alltof vel.
Yrkjum, drengir, meira !
Vökum lengur víst ég tel
verða feng að heyra.
Ekki vantar vana menn
vísur kanntu góðar.
Ekki vantar vana menn
vísur kanntu góðar.
Skáldin fanta-öflug enn
eins og tantra þjóðar.
Á pínubrók með popp og kók
penna og bók ég húki.
Á pínubrók með popp og kók
penna og bók ég húki.
Þurrt úr skók ég þrútinn hrók
þó ég lókinn strjúki.
Lengi vel þá lókinn minn,
lapti pelalambið.
[Skamm... þetta fór yfir öll velsæmismörk klámhundurinn þinn... Skabbi]
Lapti pelalambið; ekki aðeis dónalegt heldur ofstuðlun af versta tagi. Fussumsvei!
Já já gestur, ég skal laga þetta... hehe...
Ryðguð er mín rímnabrú
ræpu sér nú gestur..
Ryðguð er mín rímnabrú
ræpu sér nú gestur..
Allt mun hér sem út úr kú,
æ, nú fer ég vestur.
Enginn fær þar fundið mig,
fólkið hlær ekk'að mér,
Enginn fær þar fundið mig,
fólkið hlær ekk'að mér,
Eltu gæru, eigðu þig,
ettu lær með miklu smér.
Ég er þunnur ég er súr,
ég er brunnur votur.
Ég er þunnur ég er súr,
ég er brunnur votur.
Ég er Unnur ég er klúr,
ég er munnur snotur.
Einn skal ganga uppí mót
ævi langa þrauka.
Einn skal ganga uppí mót
ævi langa þrauka.
Yfir dranga undir fljót,
einnig gang'á hrauka.
Gullna strengi glamra á,
gulu engin blómstra.