Bóndinn stendur uppá stól,
og stekkur þaðan uppá hól,
er konan gómar gráa mús,
og geymir oní krús.
Þegar bóndinn bryður mélin.
bylar aldrei mjaltavélin
Þegar lyftist á mér anginn
eflaust kindin gerist bangin.
Ritskoðað af höfundi sjálfum!!!
Ef á lofti sveimar sól
serða allir heims um ból.
Þegar bónda krían kroppar,
kemur vor og hoppar-skoppar.
Þegar kaffi kólna fer
kominn er víst nóvember.
Þegar heyrast þorskahrotur
þá er sjórinn orðinn votur.
Hörmungar nú horfir á
Hallur bónd'á sínum skjá.
Sinan brunnin, farið féð,
til fjandans, var mér téð.
OK OK OK, þetta er ofstuðlað en samt:
Mest vita kýrnar, jamm, margt um mikið.
Jamm, miklu meira'en hið minnsta lítið.
Já, ef jöklar bresta með þrumuraust
jafnan fer að koma haust.
Allt er þegar þrennt er
því mér hætta nú snöggt ber
og af því tilefni kem ég með síðustu í bili
Ef við neðanslátri þínu snerta ei á kona né rakki
smyrja skaltu með smjöri svo þau smakki.