Veitumst halir vaskir að
vorum skuldunautum.
Skellum Halla skyr- í -bað
skemmtum oss á skautum.
veitumst halir vaskir að
vorum skuldunautum
rukkum nískir, rétt er það
ríkmannlegum fautum
veitumst halir vaskir að
vorum skuldunautum
Að grafa eftir gerlegt kvað
gull´i úr tannalautum
veitumst halir vaskir að
vorum skuldunautum
sumir gætu fengið það
að borga' í einum blautum!