Mér heldur enginn kall, enda líð ég dala á milli og villi um fyrir mönnum og geri þeim lífið leitt.
Þokulúður, fuss!
Velkomin Dalalæða.
Vel hepnuð tilkynning hjá þér. Vert þú velkominn.
Þú sagðir að það væri margt líkt með þér og þokunni má þá gera sér í hugarlund að þú sért blaut, köld og ferð í burtu þegar sólin rís?
En annars er gaman að sjá þig hér.

Bleytuna og kuldann verða menn að sannreyna, en ber nafn sem rentu sem læða enda er ég næturdýr. Ég hyggst þó ekki hverfa með hækkandi sól eins og virðist hafa verið lenska hjá nýliðum. Mér finnst ég nefnilega merkja ákveðna tortryggni í garð nýliða hér á bæ, kannski er fólk orðið langþreytt á því að vonir þess og draumar um nýtt blóð séu brotin á bak aftur æ ofan í æ?
Akkurru eru allir sona góðir við hana og vondir við mig? Brestur í óstöðvandi grát
Þú ert nú meira krúttið. Vertu velkomin!
Blæs upp blöðrur og eitt stykki sundlaug
Gjörðu svo vel!
Ljómar upp
Vertu velkomin, Dalalæða. Að því gefnu að þú haldir uppteknum hætti og komir fram af kurteisi og virðuleik mun þér vel farnast hér.
Annars heiti ég Sundlaugur Vatne og ég er sundkennari. Viltu koma í sund?
hoppar út í sundlaug með miklum látum og skvampi
Ég var nú alltaf léleg í skólasundi, reynir nokkuð á það hér?
Akkurru eru allir sona góðir við hana og vondir við mig? Brestur í óstöðvandi grát
Karlpeningur gestapó hefur löngum verið veikur fyrir hinu kyninu.
Auk þess ehm... þú valdir þér ekki alveg... nafn... við hæfi.

Stærðfræðingar baggalúts gætu eflaust komið með stærðfræðilegar útlistingar á þessu.
Hafa ber í huga við formúluna samband kyns, stafsetningar, nafns, málfræðikunnáttu, útlits og viðbragða nýliðans við ábendingar frá sér fróðari mönnum. Hugsanlega gæti Þarfagreinir stærðfrætt þetta yfir á mannamál og greint það eftir þörfum.