Rommið drekk og dreypi á,
djöfull engu nenni.
Verkfall bráðum vil ég fá,
vínsins skort um kenni.
Kenndu mér nú limrulist
ljóðakóngur góði.
Svo ég geti konu kysst
kætt'ana með ljóði.
Ljóðin frá mér léleg renna,
líka þau sem eru ný.
Ég horfði einn á hagann brenna,
hló og bjó til grín að því.
Þvílikt böl er brennur land
bættur ei verður skaðinn.
Brátt ég fer að flía land
frískur og störfum hlaðinn.
[obbobb... gnýstuðlun og stuðlastaðsetning vitlaus... Skabbi]
Kæri ,Skabbi ! Er þetta skárra,
Kveðja!
lappi,.mað skottið á milli fótanna.
því ertu að þusa hér
þykkkúpaði vingull
ranga stuðla reynið þér
rausar bull þinn dingull vísa hér til persónunar sem myndin er af
Ljóð eru góð
amma stóð
alveg óð
rauð sem glóð.
[PIFF... hvernig dettur þér í hug að koma með svona leirburð hérna... Skabbi]
Dingull dinglar hratt
drattast ég á fætur
Það ég segi satt
á sólinni hef mætur
Mætur er Megas um páska
meistarinn sálma les,
og ég tel það engan háska
þó ömurlegt sé hans fés.
Fésið á mér farið er,
að fúna heldur illa.
Læknir, Svenni, sveiar mér,
minn svæsinn telur kvilla.
Kvilla hef ég kviðnum í
í keng ég núna ligg,
toga á mig teppin hlý
og toddý heitt ég þigg.
Þigg ég kalda krús af bjór,
og kem því oní mig.
Ef ég gæskur gerist stór
ég glaður kýli þig.
Þig er raun að þurfa að sjá,
þrautin er það sönn og pínan;
Í frakka síðum ferð á stjá
og flettir af þér til að sýn'ann.
Sýn´ann oft á síðkvöldum
sælt er hann að gefa.
Aðeins handa útvöldum
aðrir grænir slefa.
hÆtlaði að hætta svona dónaskap getur ekki hætt
Slefar úr hans litla lim
lekur holdið nakið,
Djöflaðist þar daman fim
dropinn fór í lakið.
Í lakið hverfa margur maður,
mátti gegnum tíðina,
því hef ég nú bannað blaður,
og barna- litlu -smíðina.
-Smíðina litlu barna- og blaður,
bannað nú ég hef því,
tíðina gegnum mátti maður,
margur hverfa lakið í.
Smíðar slungin sléttubönd
sleypur er Húmbaba
Brátt mun fært þér blómavönd
betur veit skal rétt'upp hönd.
Hönd á plóginn hagyrðingar
hafa lagt hér nótt og dag,
ferskeytlurnar fæðast slyngar
flestir kunna á því lag.
Lög af rjóma læt í mig,
líkar vel við kökur.
Fínt er næst að fá á sig,
fimmtán undirhökur.