Peninga í pyngju set.
Plokkfisk veiði ég í net.
Hjá Rússunum er neiið nét.
Nokkuð hlýtt er þetta flet
Ákæran á Baug er bull.
Berta gaml'er orðin full.
Girnast margir glópagull.
Ákæran á Baug er bull.
Berta gaml'er orðin full.
Girnast margir glópagull.
Gin er bara mesta sull.
Vekur mig nú vetrarhríð.
Von er senn á betri tíð.
Vorin eru oftast blíð.
Vekur mig nú vetrarhríð.
Von er senn á betri tíð.
Vorin eru oftast blíð.
Enginn fílar kanans stríð.
Pestin færist nær og nær.
Nú er hún víst orðin glær.
Ég er enn með tíu tær.
Pestin færist nær og nær.
Nú er hún víst orðin glær.
Ég er enn með tíu tær.
Trjáklippurnar losa þær.
Fullyrðingar fantar eiga.
Firnahá er húsaleiga.
Birnir vilja bjórinn teiga.
Fullyrðingar fantar eiga.
Firnahá er húsaleiga.
Birnir vilja bjórinn teiga.
Brúðan gamla heitir Veiga.