Thick as a Brick - Jethro Tull
Þið eigið að hlusta á mig flippa út og syngja með öllum lögunum í það var lagið á meðan ég drekk bjór! (Það er greinilega hægt að hafa gaman að þessum þætti þegar maður leggur sig fram við að gera grín að honum... já og er pínu hífaður).
Er þó nokkur hífaður og hlustar á blóðugt
Annars ættum við bara að hlusta á Rússíbanana!
Mulatu Astatke - Yekermo Sew
Dáleiðandi alsæla.
Ég hafði loksins rænu á að muna að útvega mér tónlistina við myndina Broken Flowers. Í henni var mýgrútur af forvitnilegri, stórkostlegri tónlist, eins og vænta má hjá Jim Jarmusch. Á þessari plötu eru amk. 3 nöfn sem ég hreinlega verð að rannsaka betur: Holly Golightly, Mulatu Astatke og the Greenleafs.
Ég er kominn með hinn yndæla fiðring í magann sem fylgir óþreyjunni eftir að komast yfir og uppgvöta nýja og spennandi músík. Eyðimerkurgöngu nokkurra mánaða tónlistaráhugaleysis er lokið. Hjúkk.
Judas Priest-Painkiller. Langt frá því að vera þeirra besta, en verður að duga. Heyrði það í útvarpinu á leiðinni heim í kveld, fékk næstum holdris af spenningi yfir að heyra brezkan eðalmálm.
Ég er í skapi fyrir grindcore. Circle Of Dead Children - A Family Tree To Hang From.
Fischerspooner - Cloud er í miklu uppáhaldi hjá mér núna ásamt tónlistinni hennar Miss Kittin.
Sultans of Swing með Dire Straits. Ohhh já.
Musculus með Ham. Sigurjón Kjartansson að þylja upp latínu... hvað er meira töff en það?
Sigurjón Kjartansson að syngja abba-lagið voulez-vouz (eða hvað það nú heitir) er öngvu síðra.
Óttarr blessaður er engu verri en hann Sigurjón. En Voulez-vous með Ham er miklu betra en með ABBA... ég hallast að því að ABBA hafa stolið því frá Ham...