Núna á föstudaginn fór ég út að skemmta mér. Fór ég með vinum mínum en ekki vandamönnum. Vorum við að halda upp á Patreks daginn.
Langar mig mjög að vita hverjir héldu uppá hann auk mín.
Skellir Bismarck upp við vegg, opnar butterfly hníf og setur upp að hálsi
Ertu að segja að þú sért einhver pápista Íra bytta!?
Svaraðu mér Bismarck! Svaraðu mér!
Skellir Bismarck upp við vegg, opnar butterfly hníf og setur upp að hálsi
Ertu að segja að þú sért einhver pápista Íra bytta!?
Svaraðu mér Bismarck! Svaraðu mér!
Segir þú! Jafn grænn og Íri á St. Patricksday!
Ja ef að þú hefðir nú borið mig augum þá hefðir þú varla farið að draga Írska aflegð mína í efa. Enda kominn í beinann legg frá Melkorku Mírkjartansdóttur.
Nei, flestir þurfum við að mæta til vinnu eða annarra tímasógunar. Nægur tími til að drekka þegar maður er dauður.
Já en ekki er óalgengt að fólk bregði sér út um helgar til þess að njóta öls og annara veiga.
Grágrítið misskilur, það er vinnan sem bíður þar til eftir dauðadag
Þar að auki er nauðsynlegt að drekka fyrir dauðann en eigi eftir, a.m.k. sje um áfengisdauða að ræða. Þó er oss kunnugt um Bagglýting er fjekk e.k. timburmannahausverk fyrir drykkju (eða jafnvel án þess að drykkja ætti sjer stað) en það er undantekningin er sannar regluna.
Þess má þó til gamans geta að það voru brottfluttir Írar sem gerðu þennan dag svona stóran hátíðisdag hjá Írum með því að fara í göngur (upphaflega í Nýju Jórvík) til þess að sína hvað þeir væru nú margir og að tillit þirfti að taka til þeirra í samfélaginu. Írum þótti það nokkuð að það væru einhverjir útlendingar sem að væru að sjá um að halda upp á þjóðhátíðar dag sinn og tóku sig til og nú er þetta mikill hátíðisdagur hjá þeim.