Illa guði veðurs eygi
Inni aleinn húka
Þannig ég hugsa
og því ég segi
Þá tel ei guði en púka
Veðurpúkar uppi á himni háum
hlægja nú og flissa
að ofan rok og illa vætu fáum
þeir yfir lýðinn pissa
eða er kannski einhver guðleg röksemd að baki því að það rigni jafnt á réttláta sem rangláta?
Guðir veita vondum spark
votar skúrir falla
svo þær ekki missi mark
miða þeir á alla
..
Undan regnhlíf ansar frú
it is better me than you
uber Gipfeln ist kein Ruh
ikke solen skiner nu
Þýskar glósur, þarfaþing,
er þýða á orðið "Gipfel"
Farðu vel með vitleysing
velklifrandi á þýskan tind.
Vandinn er að enda vel.
Vísuræksni um "Ein Gipfel".