Þetta var nú voðalega
vemmilega botnað.
hringaskorður hroðalega
hafa sjálfsagt blotnað.
Kvenfólk fyrir kveðskap er
klikkaðslega veikt
[obbobbobb...æji ég er hættur að nenna þessu... Skabbi]
Kæri Skabbi, hver á þá að hirta hirðuleysingjana? Fyrir alla muni...
Nú er Lappi farinn að stroka út ábendingar mínar... fyrst að hann kann það... þá ætti hann að kunna að laga vísurnar eftir mínum ábendingum... þetta þýðir ekki lengur...
Kvenfólk fyrir kveðskap er
klikkaðslega veikt
Hefur oft hér vísnaver
vænni frú í kveikt.
Þurrausinn ég þrauka
með þrútin augu.
Hrynur gengi, hagur þverr
harðnar nú í ári
Heyrðu, það er heldur verr,
ég hætti þessu fári.
Bókhlaðan á búnt af þeim
bókum sem ég les
Bókhlaðan á búnt af þeim
bókum sem ég les
Gott er að koma aftur heim
gamla rottufés.
Langt er milli landa
ljótt er að stranda.
Iðkum sparnað, öflum fés
eflum mjólkurkýrina
Ég í því nú held til hlés
og hoppa yfir mýrina.
Gáta er í gangi flókin
gettu hver þar orti.
p.s. hlewagastiR, það er kominn þráður sem heitir Sálmagetraun, kíktu á hann.
Gáta er í gangi flókin
gettu hver hver þar orti
saurgaðist nú hjá mér brókin
skil þar heitum lorti.
Afsakið alla mina daga...
Latur ligg ég lengi, vel
laumast svo í netið
[Obbobbobb... botninn er bragfræðilegt skrípi... og fyrriparturinn ofstuðlaður... Skabbi]
Latur ligg ég lengi vel
laumast svo á netið,
ímsa hjerna tarfa tel
og tæpa mjög á geðið.
Sálar háski set að mér
sól á lofti hækkar,
Sálar háski set að mér
sól á lofti hækkar.
Brosa kann ég, kíminn ver
þá kona lörfum fækkar.
Illur grunur gefur mér
gaum í sorta nætur.
Heyrðu mig nú...
þú átt að botna mig...
eins og gömul kú...
sem elskar bara sig...
Iðkum sparnað, öflum fés
eflum mjólkurkýrina
Ég í því nú held til hlés
og hoppa yfir mýrina.
Gáta er í gangi flókin
gettu hver þar orti.
p.s. hlewagastiR, það er kominn þráður sem heitir Sálmagetraun, kíktu á hann.
Gáta er í gangi flókin
gettu hver þar orti.
Heit var konan, burt flaug brókin
ber hún stóð í porti.
Gátu skrýtna skil ég ei,
Skabbi ljóðavinur.
Gátu skrýtna skil ég ei,
Skabbi ljóðavinur.
Ís minn bráðnar, arg og svei,
orðinn er nú linur.
Varast máttu vonda stöku
vandaðu þig nú.
Varast máttu vonda stöku
vandaðu þig nú.
Annars færðu enga köku
aum er staðan sú.
Verði boðin viskýflaska
vanda mun þá stökugerð
Verði boðin viskýflaska
vanda mun þá stökugerð
Kveða skal og skjótt oss haska
í skemmtilega ökuferð
Baggalútur bestur er
bjargar eflaust lífum
Baggalútur bestur er
bjargar eflaust lífum
Hérna væflist vinaher
vonlausa upp við rífum
Annað kvöld í óperu
ég ætla mér að skella
Annað kvöld í óperu
ég ætla mér að skella
í hópreiðanna hópskveru
er hver einn blessuð mella.
ódýr útúrsnúningur..
Sitja mun og sötra drykk
söngva góð'á hlusta.
Of seinnBlótar herfilega og rífur hár sitt
Annað kvöld í óperu
ég ætla mér að skella.
Halla þér að Hallberu
hún er sjóuð mella.
Sitja mun og sötra drykk
söngva góð'á hlusta.
Kaup popp og kók og slikk
og kýla Albert fursta
Upp ég legg í langa ferð
lönd og þjóðir heilla.