Mig langar heim að sofa en ég var að mæta í vinnu. ÞREYTTUR
Mig langar að einhver eldi fyrir mig hádegismat því ég nenni því ekki sjálf.
Já heyrðu, ég þarf að fara að fá mér að borða. Ekkert búinn að éta í dag nema eina skál af Serjós.
Mig langar í gallsúrt slátur og uppstúf. fær vatn í munninn
Forðar sér út af þræðinum áður en hún missir matarlystina
Mig langar í stóra nautasteik og ekkert grænmeti með. Bara Kjöt!
Mig langar til að geta hangið á Kaffi Blút í allan dag án samviskubits.
Horfir döprum augum á útdraslaða íbúðina En... mér er víst ekki til setunnar boðið. Það þarf að græja eldhúsið, elda matinn og taka til í stofunni áður en hægt er að njóta þess að horfa á ritstjórnina etja kappi (les: vinna) í spurningakeppninni Tíminn líður hratt. Að því loknu þarf svo auðvitað að... hérna... lítur flóttalega í kringum sig ... hjálpa börnunum að horfa á júróvisjón. Já, einmitt... jamm.
Mig langar að hafa sama úthald og ég hafði áður á djamminu. Brestur í óstöðvandi grát
Mig langar að vita hvað þetta „djamm“ er sem allir eru að tala um...
[Nýjustu fréttir af tiltektinni eru þær að eldhúsið er aðeins farið að sjást, kvöldmaturinn er ekki lengur í frystinum, þvotturinn hefur byrjað búferlaflutninga sína úr óhreinatauinu og ég er að draga andann djúpt áður en ég ræðst á stofuna. Ég er ekki að svindla! Allavega ekki mikið]
Langar að eitthvað skemmtilegt gerist í mínu annars niðurnelgda og tilbreytingarlausa lífi.
Mig langar að vita hvað þetta „djamm“ er sem allir eru að tala um...
[Nýjustu fréttir af tiltektinni eru þær að eldhúsið er aðeins farið að sjást, kvöldmaturinn er ekki lengur í frystinum, þvotturinn hefur byrjað búferlaflutninga sína úr óhreinatauinu og ég er að draga andann djúpt áður en ég ræðst á stofuna. Ég er ekki að svindla! Allavega ekki mikið]
Ég dáist að þér Hexia!
Hugsar um hrúguna af ósamanbrotnum þvotti í stofusófanum heima... pantar annan espressobolla til að friða sig
Mig langar til að losna við björgunarhringinn sem ég fékk eitt sumar í málingarvinnu.
Mig langar til að losna við björgunarhringinn sem ég fékk eitt sumar í málingarvinnu.
Haha! Þú ættir að geta það fyrst ég gat minnkað á mér afturendann! Vonar að Jerusalem sé að tala um megrun
Vonar að Jerusalem sé að tala um megrun
Amm fjandans leti vinna og svo kjúklingur með frösnkum í hádeginu. Hann er búinn að fylgja mér í um 5 ár... En hann mun deyja á þessu ári. Það er meira að segja farið að minnka aðeins loftið í honum.
Mig langar að raka á mér hausinn aftur.
Mig langar að léttast um svona 30 kíló og mig langar að raka hausinn aftur líka. ^^
Vonar að Jerusalem sé að tala um megrun
Amm fjandans leti vinna og svo kjúklingur með frösnkum í hádeginu. Hann er búinn að fylgja mér í um 5 ár... En hann mun deyja á þessu ári. Það er meira að segja farið að minnka aðeins loftið í honum.
Mig langar að raka á mér hausinn aftur.
Helvíti magnaður kjúklingur! Elti hann þig hvert sem þú fórst?
Frussar af hlátri
Mig langar að...uuu...hvur djöfullinn var það aftur...hlýtur að rifjast upp bráðum.