Það má geta þess að allar flensur koma upprunalega frá fuglum einnig að hundruðþúsunda mananneskjur að mestu leiti öðruvísi á litin láta lífið ár hvert því þau eiga ekki fyrir mat. Það er hættulegra fyrir velnærðan Íslending að drepast úr hlátri enn fuglaflensu
Jarmi minn. Það er ástæða til að passa sig aðeins.
Vandamálið er bara að mestu hvernig umgengninni við endurnar á ýmsum pollum lansins er háttað. Þar liggur eina raunvörulega hættan á smiti. Fólk verður bara að læra að halda sig í hæfilegri fjarlægð og að hringja á rétt fólk ef það verður vart við dauðar endur.
Það eina sem mér er eitthvað illa við er sá möguleiki að flensan geti stökkbreyst og byrjað að smitast milli manna. Þá getur orðið svo agalega mikill brjálæðingur og ringulreið meðal fólks.
Ég læt sko ekki einhverja hryðjuverkakjúklinga koma í veg fyrir að ég fari til Tyrklands í sumar, það er alveg víst! Svo segja þeir að það sé óhætt að éta smitaða kjúklinga, svo lengi sem þeir eru eldaðir rétt, þannig að ég fæ ekki séð að þetta hafi mikil áhrif á minn lífsstíl.
Skjótum samt niður fuglana! Það er svo gaman...
Er þetta ekki bara spurning um að byrja að taka lýsi og naga þurrkaða ætihvannarrót eins og í gamla daga?
Er þetta ekki bara spurning um að byrja að taka lýsi og naga þurrkaða ætihvannarrót eins og í gamla daga?
Eða halda því áfram, allt eftir því hvað við á. Svo væri ekki úr vegi að menn bættu aðeins í Müllers-æfingarnar. Gott er að taka tvö sett meðan á þessu stendur. Gætið þess þó að sjóböðin ættu að vera stunduð með lokaðan munninn rétt yfir helsta varptímann.
Er þetta ekki bara spurning um að byrja að taka lýsi og naga þurrkaða ætihvannarrót eins og í gamla daga?
Og fjallagrasa te og mjólk og........
Í augnablikinu hef ég nú samt meiri áhyggjur af fuglastofnum en fólki.
Ef þessi flensa breiðist út verða gæsa, anda, svartfugls, skarfa og jafnvel rjúpnaveiðar bannaðar. Ekki vegna smithættu heldur til að hlífa stofnunum.
Sammála dordingli. Ég sæi meira eftir lóustofninum heldur en fjölda manns sem ég hef kynnst um ævina.
Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af þessu... FYRR EN veiran stökkbreytist og fer að breiðast um á milli manna... það gæti gerst á morgun eða eftir 100 ár... hver veit...
Er ekki mun betra að deyja úr áhyggjum heldur en þessari fuglaflensu.
gaggar létt hvað er þetta... gaggar ég er bara með smá eðlilega flensu krunkar ekkert annað tístir ÉG held meira að segja að ég sé að hressast kvakar
Bíbí og blaka
álftirnar hósta.
Ég læt sem ég sofi
en áhyggjufullur ég vaki.